| Sf. Gutt

Steven Gerrard er ekki til sölu!

Roy Hodgson, framkvæmdastjóri Liverpool, segir að Steven Gerrard sé alls ekki til sölu og það komi ekki til mála að selja hann. Roy segist hafa spjallað við Steve og honum fannst viðræður þeirra vita á gott.

"Ég er búinn að hitta Steven og mér fannst viðræður okkar jákvæðar. Um þessar mundir heyrir maður að hin og þessi félög séu að eltast við leikmenn okkar en það eru allt sögusagnir. Ekkert félag hefur boðið í Steven Gerrard."
 
"Steven Gerrard er ekki til sölu og og ég gerði honum það fyllilega ljóst. Ég sagði honum að ég væri sammála þeirri stefnu félagsins sem felur í sér að það vill ekki selja sína bestu leikmenn. Gerist það þarf að byggja allt upp á nýtt. Við viljum byggja liðið okkar upp í kringum þessa leikmenn og hann skilur þessa afstöðu okkar."
 
Nú til dags eru umboðsmenn atvinnuknattspyrnumanna oft til vandræða. Þeir hræra í umbjóðendum sínum og fara ýmsar leiðir til að koma vistaskiptum leikmanna í kring. Verst er þetta ástand líklega á sumrin og Roy veit vel af þessu.

"Á hinn bóginn geta önnur félög sett sig í samband við leikmenn og lofað þeim gulli og grænum skógum. Þetta veldur óróa hjá félaginu og leikmönnunum en við getum ekki komið í veg fyrir að þetta gerist."











TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan