| Grétar Magnússon
Búið er að draga í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og ljóst er að ferðalag til austur Evrópu er fyrir höndum hjá Roy Hodgson og hans mönnum.
TIL BAKA
Dregið í Evrópudeildinni
Búið er að draga í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar og ljóst er að ferðalag til austur Evrópu er fyrir höndum hjá Roy Hodgson og hans mönnum.Liðið mætir annaðhvort makedónska liðinu Rabotnicki eða armenska liðinu Mika og verður fyrri leikurinn á Anfield þann 29. júlí og síðari leikurinn viku síðar á útivelli.
Rabotnicki og Mika eru búin að mætast á heimavelli fyrrnefnda liðsins sem vann 1-0 sigur og er seinni leikurinn næsta fimmtudag í Armeníu.
Hér fyrir neðan er smá fróðleikur um liðin:
Rabotnicki: Liðið er, eins og áður sagði, með eins marks forystu eftir fyrri leikinn í 2. umferð. Leikmaður að nafni Wandeir skoraði sigurmarkið þrem mínútum fyrir leikslok. Liðið kemur frá höfuðborginni, Skopje og heimavöllur þeirra heitir Philip II Arena. Framkvæmdarstjórinn heitir Zoran Stratev.
Rabotnicki hefur unnið 3 deildartitla á síðustu 5 árum og bikarkeppnina tvisvar. Sammy Lee ætti að þekkja liðið eitthvað aðeins en þegar hann var stjóri hjá Bolton mættust liðin og hafði Bolton sigur samanlagt 2-1. Rabotnicki er að mestu skipað heimamönnum en sex Brasilíumenn eru þó á mála hjá félaginu.
Mika: Liðið er frá höfuðborg Armeníu, Yerevan og enduðu þeir í öðru sæti í deildinni á síðasta tímabili. Heimavöllur þeirra heitir Mika Stadium og tekur 8.000 manns. Þeir hafa aðeins unnið einn Evrópuleik í 8 tilraunum er þeir unnu MTK Budapest í undankeppni UEFA Cup árið 2007. Mika hafa fimm sinnum orðið bikarmeistarar og jafnoft unnið hina armensku Super Cup síðan um aldamótin.
Í liðinu eru aðallega Armenar þar má þó finna tvo fyrrum leikmenn unglingaliðs Real Madrid, þá Pedro Lopez og Ulises Cano.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

