| Ólafur Haukur Tómasson

Roy ánægður með að fá Jova

Líkt og áður hefur komið fram hitti nýjasti leikmaður Liverpool, Milan Jovanovic, sinn nýja stjóra og nýju samherja sína fyrr í vikunni er hann mætti í æfingabúðir liðsins í Sviss.

Sóknarmaðurinn lýsti yfir ánægju sinni yfir því að vera kominn í raðir Liverpool og var Roy Hodgson mjög sáttur með liðsstyrkinn þó svo að hann hafi ekki verið sá sem fékk Jovanovic til að skrifa undir.

"Ég er hæst ánægður með að við fengum Milan. Hann virðist mjög áhugasamur og ákveðinn leikmaður og það er gott að hafa leikmenn sem vilja ólmir spila fyrir félagið.

Ég var ekki ábyrgur fyrir því að fá hann en ég var mjög sáttur með að heyra að félagið hefði tekið frumkvæðið til að fá leikmann eins og hann. Ég sá mikið til hans á tíma mínum hjá Fulham og fylgdist með honum.

Hann er náttúrulegur vængmaður sem getur spilað í gegnum miðsvæðið. Hann er meira sóknarvængmaður heldur en kantmaður og hann er markaskorari. Hann skorar mörk fyrir liðin sín og þjóð sína og ég er viss um að við getum notað hann til góðs. Hann skoraði á Heimsmeistaramótinu, hann hefur gert vel með Standard Liege í Meistaradeildinni svo hann er ekki ókunnugur stórleikjum.

Hann hitti okkur aðeins í gærkvöldi [miðvikudaginn síðastliðinn] svo ég er ekki viss um að við munum nota hann um helgina. Hann virðist vera í formi en á þessu stigi hugsa ég að ég kjósi frekar að nota leikmennina sem hafa verið að allt undirbúningstímabilið." sagði Roy Hodgson.

Líklega munu stuðningsmenn Liverpool fá að sjá Jovanovic spila sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í æfingaleiknum við Grasshopper á miðvikudaginn næstkomandi.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan