| Ólafur Haukur Tómasson

Jova: Samningurinn var aldrei í hættu!

Nýjasti leikmaður Liverpool, Milan Jovanovic, ræddi við útsendara opinberu heimasíðu Liverpool í Sviss eftir að hann lenti þar í landi til að hitta nýju liðsfélaga sína og hefja æfingar með liðinu. Hann er hæst ánægður með að vera loksins kominn til Liverpool og fullyrðir að hann hafi aldrei hugsað um að hætta við samninginn við Liverpool, þó svo að félagið hefði skipt um knattspyrnustjóra.

"Ég ákvað að semja við Liverpool Football Club, þannig er það bara. Það er mjög einfalt. Liverpool var alltaf mín hinsta ósk og að vera hér er frábær dagur á mínum ferli og í lífi mínu. Ég vissi að þeir væru að fylgjast með mér þegar ég spilaði með Standard Liege og serbneska landsliðinu og þegar þeir spurðust fyrst fyrir um mig þá var ég mjög ánægður. Liverpool var minn eini valkostur og ég er ánægður með að samningaviðræðurnar gengu upp. Nú vil ég gera eins vel og ég get fyrir félagið næstu þrjú árin.

Þegar maður talar um Liverpool þá talar maður um eitt stærsta félagið í heiminum, kannski fyrir mitt leyti það stærsta. Maður ræðir um sögufrægt félag sem hefur unnið Meistaradeild Evrópu fimm sinnum!." sagði sóknarmaðurinn geðþekki.

Það er mikið sem hann hlakkar til að upplifa og gera hjá Liverpool en hann er einnig staðráðinn í að sýna sig fyrir nýja stjóra sínum og stuðningsmönnum Liverpool.

"Ég get ekki beðið eftir að spila á Anfield og heyra "You'll Never Walk Alone" - besta lag í heiminu. Ég get heldur ekki beðið eftir því að spila með leikmönnum eins og Torres, Gerrard, Kuyt, Mascherano og Reina, nokkrum af bestu leikmönnum í heiminum. Það er erfitt fyrir mig að segja stuðningsmönnum hvað ég mun koma með inn í liðið, ég kýs frekar að láta einhvern annan um það en ég veit það að ég þarf að gera er að standa mig vel á vellinum og sýna hvað ég get þegar ég fæ tækifæri til."

Liverpool gaf honum þann mikla heiður að fá að leika í treyju númer tíu en margir góðir leikmenn hafa borið það númer á tíma sínum hjá Liverpool. Jovanovic veit vel um leikmennina sem hafa klæðst því númeri en segir það ekki skipta máli.

Það leynir sér ekki að Jovanovic hefur hugafarið til að láta ljós sitt skína á Anfield og leynir gleðin í orðum hans sér ekki. Vonandi verða stuðningsmenn Liverpool jafn ánægðir með að hann hafi komið til félagsins og hann er, þegar líður á tímabilið.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan