| Sf. Gutt
Liðshópur Liverpool hélt í æfingabúðir til Sviss í gær. Liðshópurinn er að mestu skipaður ungum og óreyndum leikmönnum. Ástæðan er auðvitað sú að flestir fulltrúar Liverpool í Suður Afríku eru nú í fríi til að jafna sig eftir átökin þar. Hér að neðan er liðshópur Liverpool.
Markmenn: Diego Cavalieri, Peter Gulacsi og Martin Hansen. Aðrir leikmenn: Alberto Aquilani, Albert Riera, Lucas Leiva, Emiliano Insua, David Ngog, Jay Spearing, Philipp Degen, Stephen Darby, Martin Kelly, Steven Irwin, Nathan Eccleston, Daniel Ayala, David Amoo, Lauri Dalla Valle, Thomas Ince, Jonjo Shelvey og Guðlaugur Victor Pálsson.
Það skal tekið fram að HM fararnir Sotirios Kyrgiakos og Milan Jovanovic koma til liðs við hópinn í Sviss. Grikkland og Serbía féllu úr leik eftir riðlakeppnina og þeir félagar eru því búnir að vera í fríi að undanförnu. Aðrir leikmenn, sem spiluðu í Suður Afríku, koma til æfinga seinna í mánuðinum. Heimsmeistararnir frá Spáni og silfurhafar Hollands reka lestina til æfinga um mánaðarmótin.
Fulltrúi Íslands, Guðlaugur Victor Pálsson, er í hópnum. Hann fylgir félögum sínum úr varaliðinu sem skipa stóran hluta hópsins í Sviss.
Fyrsti æfingaleikur Liverpool fer fram núna á laugardaginn þegar liðið mætir Al Hilal frá Saudi Arabíu. Leikurinn fer fram í smábænum Altach í Austurríki.
TIL BAKA
Ungt lið til æfinga í Sviss
Liðshópur Liverpool hélt í æfingabúðir til Sviss í gær. Liðshópurinn er að mestu skipaður ungum og óreyndum leikmönnum. Ástæðan er auðvitað sú að flestir fulltrúar Liverpool í Suður Afríku eru nú í fríi til að jafna sig eftir átökin þar. Hér að neðan er liðshópur Liverpool. Markmenn: Diego Cavalieri, Peter Gulacsi og Martin Hansen. Aðrir leikmenn: Alberto Aquilani, Albert Riera, Lucas Leiva, Emiliano Insua, David Ngog, Jay Spearing, Philipp Degen, Stephen Darby, Martin Kelly, Steven Irwin, Nathan Eccleston, Daniel Ayala, David Amoo, Lauri Dalla Valle, Thomas Ince, Jonjo Shelvey og Guðlaugur Victor Pálsson.
Það skal tekið fram að HM fararnir Sotirios Kyrgiakos og Milan Jovanovic koma til liðs við hópinn í Sviss. Grikkland og Serbía féllu úr leik eftir riðlakeppnina og þeir félagar eru því búnir að vera í fríi að undanförnu. Aðrir leikmenn, sem spiluðu í Suður Afríku, koma til æfinga seinna í mánuðinum. Heimsmeistararnir frá Spáni og silfurhafar Hollands reka lestina til æfinga um mánaðarmótin.
Fulltrúi Íslands, Guðlaugur Victor Pálsson, er í hópnum. Hann fylgir félögum sínum úr varaliðinu sem skipa stóran hluta hópsins í Sviss.
Fyrsti æfingaleikur Liverpool fer fram núna á laugardaginn þegar liðið mætir Al Hilal frá Saudi Arabíu. Leikurinn fer fram í smábænum Altach í Austurríki.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

