| Ólafur Haukur Tómasson
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á starfsliði Liverpool í kjölfar knattspyrnustjóra skiptanna. Það var í stjórnartíð Rafael Benítez sem ráðið var Ástralann Peter Brukner til að taka við stöðu nokkurs konar yfirmanns lækna og íþróttavísindadeild Liverpool, hann hefur svo ráðið tvo Ástrala með sér til að vinna að því að draga úr meiðslum leikmanna en þeir voru ásamt Brukner í læknateymi ástralska landsliðsins á Heismeistaramótinu. Það eru þeir Darren Burgess og Phil Coles sem fylgja landa sínum á Melwood.
Einnig var Zaf Iqubal, læknir hjá Tottenham Hotspur, ráðinn til Liverpool og tekur þar líklega við stöðu Dr. Waller sem hefur sinnt því starfi um tíma. Jordan Milsom var líka ráðinn inn í starfsliðið en hann starfar sem íþróttavísindamaður. Barry Drust, íþróttavísinda ráðgjafi John Moores háskólans mun einnig vera í samstarfi við Liverpool og mun hann eyða nokkrum dögum á viku á Melwood.
Einnig má get þess að nokkrir starfsmenn hafa yfirgefið hópinn. Aðalliðsþjálfarinn Mauricio Pellegrino, þrekþjálfarnir Eduardo Garcia og Paco De Miguel, markmannsþjálfarinn Xavi Valero og íþróttasálfræðingurinn Felix Ledesma fylgdu Rafael Benítez til Inter og varaliðsþjálfararnir Gonzalo Rodriguez og Antonio Gomez fóru til Vallaodild.
Ekki hafa nýjir þjálfarar fylgt Roy Hodgson til Liverpool en líklega mun vera hreyfing á þeim málum á næstunni. Eins og staðan er í dag þá heldur Sammy Lee stöðu sinni sem aðstoðarstjóri en það getur vel verið að breyting verði á þeirri stöðu þegar líður á sumarið.
TIL BAKA
Breytingar á starfsliðinu
Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á starfsliði Liverpool í kjölfar knattspyrnustjóra skiptanna. Það var í stjórnartíð Rafael Benítez sem ráðið var Ástralann Peter Brukner til að taka við stöðu nokkurs konar yfirmanns lækna og íþróttavísindadeild Liverpool, hann hefur svo ráðið tvo Ástrala með sér til að vinna að því að draga úr meiðslum leikmanna en þeir voru ásamt Brukner í læknateymi ástralska landsliðsins á Heismeistaramótinu. Það eru þeir Darren Burgess og Phil Coles sem fylgja landa sínum á Melwood.Einnig var Zaf Iqubal, læknir hjá Tottenham Hotspur, ráðinn til Liverpool og tekur þar líklega við stöðu Dr. Waller sem hefur sinnt því starfi um tíma. Jordan Milsom var líka ráðinn inn í starfsliðið en hann starfar sem íþróttavísindamaður. Barry Drust, íþróttavísinda ráðgjafi John Moores háskólans mun einnig vera í samstarfi við Liverpool og mun hann eyða nokkrum dögum á viku á Melwood.
Einnig má get þess að nokkrir starfsmenn hafa yfirgefið hópinn. Aðalliðsþjálfarinn Mauricio Pellegrino, þrekþjálfarnir Eduardo Garcia og Paco De Miguel, markmannsþjálfarinn Xavi Valero og íþróttasálfræðingurinn Felix Ledesma fylgdu Rafael Benítez til Inter og varaliðsþjálfararnir Gonzalo Rodriguez og Antonio Gomez fóru til Vallaodild.
Ekki hafa nýjir þjálfarar fylgt Roy Hodgson til Liverpool en líklega mun vera hreyfing á þeim málum á næstunni. Eins og staðan er í dag þá heldur Sammy Lee stöðu sinni sem aðstoðarstjóri en það getur vel verið að breyting verði á þeirri stöðu þegar líður á sumarið.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

