| Ólafur Haukur Tómasson
Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið síðastu fimmtán mínúturnar í framlengingu úrslitaleiks Heimsmeistaramótsins þá tókst framherjanum Fernando Torres að eiga þátt í sigurmarkinu og meiðast rétt fyrir leikslok.
Útlitið var ekki bjart til að byrja með en talið var að hann gæti verið frá vegna meiðsla í allt að tvo mánuði. Leikmaðurinn fór í gær í röntgenmyndatöku sem sýndi að meiðslin eru ekki eins slæm og í fyrstu var haldið.
"Í upphafi leit út fyrir að hann hefði rifnað smávægilega í lærinu og læknalið spænska liðsins töldu það ekki vera alvarlegt á þeim tíma. Í gær fór hann í röntgenmyndatöku sem staðfesti smá rifu í vöðvanum. Hann ætti að geta hafið æfingar á næstu tveimur til þremur vikum og geta spilað eftir þrjár til fjórar." sagði Peter Brukner, yfirmaður læknamála hjá Liverpool.
Það eru því góðar fréttir að Torres muni aðeins vera frá í tæplega fjórar vikur frekar en þær átta sem í upphafi var talið. Hann gæti því verið klár fyrir upphafsleiki Liverpool í Úrvalsdeildinni og ekki veitir af honum þar sem fyrstu tveir leikirnir eru gegn Arsenal og Manchester City.
TIL BAKA
Skárri fréttir af Torres
Þrátt fyrir að hafa aðeins leikið síðastu fimmtán mínúturnar í framlengingu úrslitaleiks Heimsmeistaramótsins þá tókst framherjanum Fernando Torres að eiga þátt í sigurmarkinu og meiðast rétt fyrir leikslok. Útlitið var ekki bjart til að byrja með en talið var að hann gæti verið frá vegna meiðsla í allt að tvo mánuði. Leikmaðurinn fór í gær í röntgenmyndatöku sem sýndi að meiðslin eru ekki eins slæm og í fyrstu var haldið.
"Í upphafi leit út fyrir að hann hefði rifnað smávægilega í lærinu og læknalið spænska liðsins töldu það ekki vera alvarlegt á þeim tíma. Í gær fór hann í röntgenmyndatöku sem staðfesti smá rifu í vöðvanum. Hann ætti að geta hafið æfingar á næstu tveimur til þremur vikum og geta spilað eftir þrjár til fjórar." sagði Peter Brukner, yfirmaður læknamála hjá Liverpool.
Það eru því góðar fréttir að Torres muni aðeins vera frá í tæplega fjórar vikur frekar en þær átta sem í upphafi var talið. Hann gæti því verið klár fyrir upphafsleiki Liverpool í Úrvalsdeildinni og ekki veitir af honum þar sem fyrstu tveir leikirnir eru gegn Arsenal og Manchester City.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

