| Ólafur Haukur Tómasson

Tveir leikmenn farnir

Liverpool hefur greint frá því að tveir leikmenn séu ekki á mála hjá félaginu lengur. Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Francisco Duran og Nikolay Mihaylov. Báðir gengu til liðs við Liverpool árið 2007 en mistókst að spila með aðalliðinu.

Francisco Duran, sem er á meðfylgjandi mynd, kom til Liverpool frá Malaga í byrjun ársins 2007 og byrjaði með varaliðinu. Þrátt fyrir að hafa sýnt góða takta með varaliðinu þá var það ekki nóg þar sem að síendurtekin og erfið meiðsli settu stórt strik í feril hans hjá félaginu. Miklar vonir voru bundnar við Duran en meiðslin hafa líklega eyðilagt feril hans á Anfield.

Mihaylov kom til Liverpool frá Levski Sofia í heimalandi sínu Búlgaríu en náði ekki að vinna sér inn sæti í aðalliðinu. Vegna vandræða með með vegabréf þá var hann lánaður til FC Twente þar sem hann varð hollenskur meistari. Hann hefur nú gengið endanlega til liðs við meistarana.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan