| Ólafur Haukur Tómasson

Roy óskar Reina og Torres til hamingju

Eins og flest allir eiga að vita þá urðu Spánverjar Heimsmeistarar um síðustu helgi og voru tveir leikmenn Liverpool í meistaraliðinu. Liverpool átti einnig tvo leikmenn í silfurliðinu svo það hefði ekki skipt máli hvernig úrslitaleikurinn hefði farið. Liverpool hefði alltaf átt tvo leikmenn sem yrðu Heimsmeistarar.

Roy Hodgson óskar sigurvegurunum til hamingju og kemur einnig inn á hina mögnuðu mynd sem sýnir Fernando Torres halda á bikarnum með Liverpool-trefil vafinn utan um sig.

"Sem knattspyrnustjóri Liverpool þá fyllir það mig miklu stolti að tveir af leikmönnum okkar geta kallað sig Heimsmeistara í sumar. Því miður þurfti annað liðið að tapa í úrslitunum og meðan samúð mín fer til hollensku strákana þá verð ég að óska Fernando og Pepe til hamingju. Að vinna Heimsmeistaramótið er merkasti heiðurinn sem leikmaður getur hlotið í landsliðsknattspyrnu og það sást á báðum leikmönnunum þegar fagnaðarlætin byrjuðu.

Ég held að það sé óhætt að segja að myndin af Fernando í búningsklefanum eftir leikinn hafi farið vel í stuðningsmenn okkar en félagið getur verið stolt af öllum leikmönnum sínum sem tóku þátt á Heimsmeistaramótinu. Að eiga fjóra leikmenn í úrslitunum ef ótrúlegt afrek og ég hlakka til að vinna með þeim þegar þeir snúa aftur á Melwood eftir fríið sitt."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan