| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Joe Cole vill sömu laun og Gerrard
Joe Cole fer fram á 120 þúsund pund í vikulaun. Það eru svipuð laun og fyrirliðinn Steven Gerrard hefur hjá félaginu. Ekki er talið að Liverpool fallist á slíkar launakröfur.

Joe Cole er fáanlegur á frjálsri sölu, en samningur hans við Chelsea rann út nú í sumar. Launakröfur hans voru ein ástæðan fyrir því að áframhaldandi samningar milli hans og ensku meistaranna tókust ekki.
Cole er vitanlega mjög eftirsóttur, enda ekki á hverjum degi sem leikmenn í hans gæðaflokki eru samningslausir. Vitað er að auk Liverpool hafa Manchester United, Tottenham og Arsenal lýst áhuga á að tryggja sér þjónustu kappans. Launakröfur hans virðast þó standa aðeins í mönnum.
Samkvæmt Daily Mail hefur Liverpool boðið Cole samning sem myndi tryggja honum 80 þúsund pund í vikulaun, en hann á að hafa hafnað því tilboði og farið fram á sambærileg laun og fyrirliðinn Steven Gerrard. Rétt er að taka fram að félagið hefur ekki staðfest þessar fréttir.
Daily Mail segir jafnframt að ekkert hinna liðanna þriggja sem virðast keppast um að krækja í Cole sé tilbúið til þess að greiða honum svo há laun og því sé það nokkuð ljóst að hann neyðist á endanum til að slá aðeins af kröfunum. Þó gefur Daily Mail það í skyn að Roy Hodgson sé líklegastur stjóranna til að láta undan þar sem hann þurfi sárlega á stórstjörnu að halda, sérstaklega þegar framtíð Fernando Torres og Steven Gerrard hjá Liverpool er í óvissu.

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan