Spánverjar heimsmeistarar!

Það var gríðarlega spenna í loftinu á Soccer City leikvanginum í Jóhannesarborg í Suður Afríku þegar leikmenn Spánar og Hollands gengu til leiks. Hvorug þjóðin hafi áður unnið heimsmeistaratitilinn og því var ljóst að nýtt nafn yrði skráð í sögu keppninnar. Dirk Kuyt var í byrjunarliði Hollands eins og við var búist en Ryan Babel ekki frekar en áður í keppninni. Eins og í undanúrslitaleiknum gegn Þjóðverjum þá var Fernando Torres var ekki valinn í byrjunarlið Spánar. Jose Reina var ekki í markinu hjá Spánverjum og líklega hafði enginn búist við því.
Það var strax ljóst að Hollendingar ætluðu að spila fast og reyna þannig að stöðva hið margfræga miðjuspil Spánverja og koma liðinu úr jafnvægi. Spánverjar fengu fyrsta færið snemma leiks þegar Sergio Ramos náði góðum skalla eftir aukaspyrnu en Maarten Stekelenburg markmaður Hollendinga varði frábærlega. Nokkrum mínútum seinna náði Dirk Kuyt langskoti sem fór beint á Iker Casillas markmann Spánverja. Þetta var í eina skiptið sem Dirk ógnaði marki Spánar. Á lokamínútu hálfleiksins náði Arjen Robben skoti að marki en Iker varði neðst í horninu. Markalaust var í leikhléi. Hollendingar áttu þó að vera manni færri þegar kom að leikhléinu eftir að Nigel de Jong hafi sett sólann í brjóstkassann á Xabi Alonso!
Síðari hálfleikur þróaðist á svipaðan veg og þann fyrri. Spánverjar reyndu að halda sínu spili og Hollendingar gerðu allt sem þeir gátu til að brjóta það niður með föstum og grófum leik. Á 62. mínútu kom loksins dauðafæri og það voru Hollendingar sem fengu það. Wesley Sneijder stakk boltanum inn fyrir vörnina á Arjen Robben sem slapp einn í gegn. Iker kom út á móti honum en Arjen virtist ætla að skora með því að renna boltanum framhjá honum en á einhvern ótrúlegan hátt náði Iker að slæma fæti í boltann og verja. Algjörlega mögnuð markvarsla!
Svo sem tíu mínútum seinna skall hurð nærri hælum við mark Hollendinga þegar David Villa gerðist nærgöngull. Hann fékk þá boltann eftir fyrirgjöf en John Heitinga, sem áður hafði misreiknað fyrirgjöfina, náði að komast fyrir skotið þar sem hann lá á vellinum. Á 83. mínútu slapp Arjen aftur í gegn. Hann komst þá af harðfylgi framhjá Carles Puyol og inn í teig en Iker kom á móti og náði boltanum. Arjen varð reiður mjög því hann taldi að Carles hefði hindrað sig og vissulega var það rétt og þá hefði átt að reka Spánverjann af velli. Arjen stóð þó allt af sér og því var erfitt að dæma brot. Eftir venjulegan leiktíma var enn markalaust.
Í framlengingunni virtust Spánverjar smá saman ná styrkari tökum á leiknum. Rétt undir lok fyrri hálfleiks hennar komst varamaðurinn Cesc Fabregas einn í gegnum vörn Hollendinga en rétt frá vítateignum fór skot hans framhjá. Í hálfleik á framlengingunni kom stundin sem margir stuðningsmenn Liverpool höfðu beðið eftir en þá kom Fernando Torres inn á sem varamaður fyrir David Villa.
Á 110. mínútu fækkaði loks í liðum þegar John Heitinga varnarmaður Hollendinga var rekinn af leikvelli. Brottreksturinn kom kannski seinna en von var á því átta Hollendingar og fimm Spánverjar voru bókaðir í leiknum. Þrátt fyrir brottreksturinn virtist allt stefna í að útkljá þyrfti þessa miklu rimmu með vítaspyrnukeppni en sem betur fer fór ekki svo því alltaf er nú betra að gera út um leiki án þess að nota vítaspyrnukeppni.
Á 116. mínútu kom sigurmarkið. Spánverjar sótti fram völlinn og Fernando Torres fékk boltann út til vinstri. Hann sendi fyrir markið en varnarmaður komst fyrir. Sá náði þó ekki að koma boltanum frá og Cesc fékk boltann fyrir miðjum vítateig. Hann lagði boltann til hægri á Andres Iniesta sem lagði boltann fyrir sig og sendi hann svo neðst í hornið fjær. Spánverjar ærðust af fögnuði og titillinn svo gott sem kominn í þeirra hendur.
Leikurinn varð endasleppur fyrir Fernando Torres sem elti sendingu fram á lokaandartökum leiksins. Hann stöðvaði skyndilega, lagðist niður og var borinn af velli! Fernando var því ekki inni á vellinum þegar Spánverjar urðu heimsmeistarar! Það kom þó varla að sök og hann gat fagnað með félögum sínum þegar Spánverjar voru krýndir meistarar í fyrsta sinn!

Vart verður annað sagt en að Spánverjar séu verðskuldaðir heimsmeistarar. Reyndar áttu flestir von á því að liðið spilaði opnari sóknarleik og lið hefur aldrei orðið heimsmeistari með færri skoruð mörk. En liðið lék samt sóknarleik alla keppnina og hélt sig við sitt leikskipulag. Frá því liðið varð Evrópumeistari fyrir tveimur árum þá hefur skipulaginu verið breytt þannig að vörnin hefur verið styrkt og aðeins dregið úr honum opna leik sem liðið spilaði þá. Liðið bauð því upp á skemmtilegri knattspyrnu þegar það vann Evrópubikarinn en ég hygg að það sé mál manna að spænska landsliðið sé það besta í heimi. Það getur ekki verið tilviljun að liðið sé bæði heims- og Evrópumeistari! Við stuðningsmenn Liverpool getum verið stoltir því leikmenn okkar, núverandi og fyrrverandi, hafa lagt sitt af mörkum í þessum magnaða árangri.
Holland: Stekelenburg, Van Der Wiel, Heitinga, Mathijsen, Van Bronckhorst (Braafheid 105. mín.), Van Bommel, De Jong (Van der Vaart 99. mín.), Sneijder, Kuyt (Elia 70. mín.), Van Persie og Robben.
Ónotaðir varamenn: Vorm, Boschker, Boulahrouz, Ooijer, De Zeeuw, Schaars, Afellay, Babel og Huntelaar.
Spánn: Casillas, Pique, Puyol, Capdevila, Ramos, Iniesta, Xavi, Alonso (Fabregas 87. mín.), Busquets, Villa (Torres 105. mín.) og Pedrito (Navas 60. mín.).
Ónotaðir varamenn: Valdes, Reina, Albiol, Marchena, Arbeloa, Martinez, Silva, Mata og Llorente.
Áhorfendur: 84.490.
Maður leiksins: Andres Iniesta.
Heimsmeistari Liverpool: Fernando Torres. Tók þátt í öllum sjö leikjum Spánverja.
Heimsmeistari Liverpool í liðshópi: Jose Reina. Tók ekki þátt í neinum leik.
Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

