| Sf. Gutt

Heimsmetsmynd!

Nýtt heimsmet var sett á vefsíðu Liverpool, Liverpoolfc.tv, í kjölfar heimsmeistaratitils Spánverja. Í dag er greint frá því, á Liverpoolfc.tv, að á einum sólarhring hafði verið smellt á síðuna í 2,928,113 skipti!

Nýtt met var sett í heimsóknum á síðuna daginn sem Roy Hodgson tók við sem framkvæmdastjóri en það met var bætt um rúmlega 75.000 smelli!

Þetta var fréttin sem mest var skoðuð. Hún bar fyrirsögnina ,,Besta mynd sem þú munt sjá á þessu ári". Í inngangi var sagt að þarna væri að finna myndir af Fernando Torres fagna sigri með heimsbikarinn og Liverpool trefil!. Þessi frétt var 203.753 sinnum! 

Það er svo sem ekki að undra að þessi frétt hafi verið skoðuð grimmt enda ekki á hverjum degi sem leikmaður Liverpool fagnar heimsmeistaratitli!

Hér eru myndir sem teknar voru á Soccer City leikvanginum í Jóhannesarborg eftir sigur Spánverja.

Hér eru myndir sem voru teknar af ferðalagi Spánverja heim til Spánar. 

Hér eru myndir af fögnuði Spánverja í Madríd.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan