| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Insua til Fiorentina?
Emiliano Insua hefur átt í viðræðum við Ítalska liðið Fiorentina og því getur orðið lítið um vinstri bakverði hjá Liverpool á næstunni.

Eins og menn muna er Fabio Aurelio farinn frá félaginu og nú gæti farið svo að hinn vinstri bakvörður aðalliðsins, Argentínumaðurinn Emiliano Insua, hverfi sömuleiðis á braut.
Insua hefur ítrekað verið orðaður við Fiorentina að undanförnu og nú hefur Roy Hodgson staðfest að hinn ungi og efnilegi Argentínumaður hafi átt í viðræðum við ítalska liðið um hugsanleg félagaskipti. Hodgson segist ekki geta sagt fyrir um útkomuna úr þeim viðræðum, en segist vonast til þess að Insua fari hvergi.
,,Ég hef nú fylgst með honum á æfingum síðustu þrjá dagana og ég kann vel við hann bæði sem leikmann og persónu", segir Hodgson.
,,Þreifingarnar milli hans og Fiorentina voru byrjaðar áður en ég kom hingað þannig að ég veit satt best að segja ekki hvernig staðan er á þeim málum. En ég get staðfest að Insua hefur átt í viðræðum við Ítalina."
,,Ég vonast til að halda honum en ég veit ekki hversu langt á veg viðræður hans við Fiorentina eru komnar. Ég mun setjast niður með forráðamönnum félagsins og ræða framtíð Insua á næstu dögum."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan