| Heimir Eyvindarson

Liverpool mun gera allt til að halda í Torres

Enskir fjölmiðlar segja frá því í dag að Liverpool muni gera allt til að halda Fernando Torres í herbúðum félagsins, en mikil ásókn er í kappann þrátt fyrir að hann hafi enn ekki sýnt sitt rétta andlit á HM.

Fernando Torres gerir sig nú kláran fyrir stærsta leik ferilsins og vonast auðvitað til að vera í byrjunarliði Spánar þegar þeir mæta Hollendingum í úrslitum HM í kvöld.

Torres hefur gefið það út að hann muni taka ákvörðun um framtíð sína hjá Liverpool þegar HM er lokið og ensk slúðurblöð virðast sammála um það að nokkurs óróa sé farið að gæta hjá forráðamönnum Liverpool, en vitað er að Chelsea, Manchester City, Barcelona og fleiri lið hafa áhuga á að tryggja sér þjónustu framherjans næsta vetur.

Hermt er að Liverpool hafi sett 100 milljón punda verðmiða á Torres fyrir HM til að fæla áhugasama kaupendur frá og þá er einnig greint frá því að forráðamenn Liverpool hafi gefið í skyn að Torres muni verða gert mjög erfitt fyrir að yfirgefa félagið.

Í frétt News of the world er fullyrt að Torres muni þurfa að skila inn formlegri beiðni um félagaskipti, fari svo að hann ákveði að yfirgefa félagið, og honum verði ekki leyft að fara nema að minnsta kosti 70 milljónir punda fáist fyrir hann. Að öðrum kosti verði hann að gera sér að góðu að vera áfram á Anfield.

Ekki er talið að mörg félag geti reitt fram slíka upphæð. Barcelona á sem kunnugt er í fjárhagsvandræðum þannig að tæpast má búast við því að þeir blandi sér í baráttuna. Chelsea og Manchester City munu hafa burði til að punga út heilum 70 milljónum punda fyrir einn leikmann, en talið er ólíklegt að Torres hafi áhuga á að fara til City þar sem liðið verður ekki með í Meistaradeildinni næsta vetur.

Daily Mirror segir frá því að Roy Hodgson hafi hug á því að fljúga til Madrid, þar sem Spánverjar munu taka á móti HM-hetjum sínum á morgun, og freista þess að hitta Torres augliti til auglitis til að sannfæra hann um að vera um kyrrt hjá Liverpool.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan