Hvort fagnar Dirk eða Fernando?

Á morgun ræðst, í Jóhannesarborg í Suður Afríku, hvort Holland eða Spánn verður heimsmeistari í knattspyrnu 2010. Um leið kemur í ljós hvaða leikmenn Liverpool fagna æðstu verðlaunum í heimsknattspyrnunni. Í hollenska landsliðshópnum eru þeir Dirk Kuyt og Ryan Babel en í þeim spænska eru Fernando Torres og Jose Reina.

Bæði Fernando Torres og Dirk Kuyt hafa spilað alla sex leiki sinna liða á mótinu en þeim hefur vegnað misjafnlega. Dirk hefur leikið mjög vel, skorað eitt mark og lagt upp tvö. Hann hefur, eins og honum er eiginlegt, barst eins og ljón og verið látlaust á ferðinni. Ekki er vafi á því að Dirk er búinn að vera með betri mönnum Hollendinga á mótinu og það myndi koma verulega á óvart ef hann yrði ekki í byrjunarliðinu á sunnudaginn.
Fernando hefur á hinn bóginn ekki náð sér á strik í Suður Afríku. Hann kom inn á sem varamaður í fyrsta leiknum en eftir það hóf hann alla leiki þar til gegn Þjóðverjum í undanúrslitunum. Í þeim leik kom hann inn á sem varamaður undir lokin. Fernando hefur enn ekki skorað og í raun hefur hann verið langt frá sínu besta. Það má öllum ljóst vera að hann er ekki enn búinn að ná sér eftir liðþófaaðgerðina sem hann fór í í apríl. Það er því alls ekki víst að Fernando verði í byrjunarliði Spánar í úrslitaleiknum. Líklegt má þó telja að hann komi eitthvað við sögu.

Þeir Ryan og Jose hafa ekki enn tekið þátt í einum einasta leik í Suður Afríku en þeir fá samt verðlaunapeninga eftir því hvernig leikurinn fer. Áður tíðkaðist að verðlaunapeninga fengu bara þeir sem spiluðu úrslitaleikinn en nú fá allir sem eru í leikmannahópunum verðlaun. Allir í sigurliðinu teljast því til heimsmeistara þótt þeir hafi ekki spilað einn einasta leik.
En hverjir verða heimsmeistarar? Hvort fagna þeir Dirk og Ryan eða Fernando og Jose? Flestir sparkspekingar telja Evrópumeistarana frá Spáni sigurstranlegri. Liðið hefur reyndar ekki þótt leika eins vel og við var búist en það sýndi styrk sinn í undanúrslitaleiknum þegar þeir unnu Þjóðverja 1:0. Holland hefur þótt leika mjög vel og kannski betur en von var á. Það reyndi vel á liðið í undanúrslitunum en það hafði góðan 3:2 sigur gegn Úrúgvæ.
Bæði lið hafa byggt á gríðarlega sterkum varnarleik og öguðum og skipulögðum leik. Búist var með opnari sóknarleik frá báðum liðum og var í því miðað við hvernig liðin léku í Evrópukeppni landsliða fyrir tveimur árum. Nú er öldin önnur og kannski hafa breyttar áherslur skilað liðunum svona langt en reyndar færði beittur sóknarleikur Spánverjum Evróputitilinn 2008. Flestir búast við að þeir bæti heimsmeistaratitlinum í safnið á morgun en enginn skyldi afskrifa hollenska liðið.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

