| Sf. Gutt
Það bætist í hóp þeirra leikmanna Liverpool sem segjast vilja vera áfram hjá félaginu. Þeir Jose Reina, Daniel Agger og fleiri hafa lýst hollustu sinni við félagið og núna hefur Dirk Kuyt sagt að hann vilji vera hjá Liverpool.
,,Auðvitað vil ég vera áfram. Liverpool er frábært félag með magnaða sögu. Því miður hef ég ekki náð að vinna neina titla á þeim fjórum árum sem ég hef verið hér en vonandi fæ ég tækifæri til þess í framtíðinni. Við verðum að sjá hverju fram vindur en ég vona að framkvæmdastjórinn vilji halda mér áfram. Ég talaði við fólkið hjá félaginu og ég veit að hann vill tala við mig en þetta er mjög erfitt í augnablikinu því að við erum mjög uppteknir og öll einbeitingin er á því sem er framundan."
Þetta verða að teljast góðar fréttir því Liverpool þarf á öllum sínum traustustu leikmönnum að halda þegar ný leiktíð hefst. Hvaða skoðun sem menn hafa á Dirk Kuyt þá segir það sína sögu um getu hans að hann verður næstum því örugglega í byrjunarliði Hollendinga í úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar á sunnudaginn. Dirk er búinn að standa sig frábærlega á HM, skora eitt mark og leggja upp tvö. Annað markið sem hann lagði upp kom Hollendingum í úrslitaleikinn.
TIL BAKA
Dirk Kuyt vill vera um kyrrt
Það bætist í hóp þeirra leikmanna Liverpool sem segjast vilja vera áfram hjá félaginu. Þeir Jose Reina, Daniel Agger og fleiri hafa lýst hollustu sinni við félagið og núna hefur Dirk Kuyt sagt að hann vilji vera hjá Liverpool. ,,Auðvitað vil ég vera áfram. Liverpool er frábært félag með magnaða sögu. Því miður hef ég ekki náð að vinna neina titla á þeim fjórum árum sem ég hef verið hér en vonandi fæ ég tækifæri til þess í framtíðinni. Við verðum að sjá hverju fram vindur en ég vona að framkvæmdastjórinn vilji halda mér áfram. Ég talaði við fólkið hjá félaginu og ég veit að hann vill tala við mig en þetta er mjög erfitt í augnablikinu því að við erum mjög uppteknir og öll einbeitingin er á því sem er framundan."
Þetta verða að teljast góðar fréttir því Liverpool þarf á öllum sínum traustustu leikmönnum að halda þegar ný leiktíð hefst. Hvaða skoðun sem menn hafa á Dirk Kuyt þá segir það sína sögu um getu hans að hann verður næstum því örugglega í byrjunarliði Hollendinga í úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar á sunnudaginn. Dirk er búinn að standa sig frábærlega á HM, skora eitt mark og leggja upp tvö. Annað markið sem hann lagði upp kom Hollendingum í úrslitaleikinn.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

