| Sf. Gutt
Serbinn Milan Jovanovic hefur gert samning við Liverpool. Samningurinn gildir til þriggja ára. Milan er fyrsti leikmaðurinn sem Liverpool fær núna í sumar. Hann hafði þetta að segja á Liverpoolfc.tv í dag.
,,Það er mér heiður að gera samning við eitt stærsta félagið í knattspyrnuheiminum. Ég get ekki beðið eftir að byrja að vinna með framkvæmdastjóranum og hitta nýju félaga mína í æfingabúðum okkar í Sviss."
Milan Jovanovic var síðustu fjögur árin hjá Standard Liege þar sem hann varð belgískur meistari árin 2008 og 2009. Hann var kjörinn Knattspyrnumaður ársins í Belgíu árið 2008 og vann Gullskóinn árið eftir. Milan, sem getur bæði leikið stöðu sóknarmanns og útherja, þótti mjög sterkur hjá Standard og skoraði töluvert af mörkum. Áður lék hann með Vojvodina, Shakhtar Donetsk og Lokomotiv í Moskvu.
Milan hefur leikið 29 landsleiki með Serbíu og skorað tíu mörk. Hann lék alla þrjá leiki Serba á Heimsmeistaramótinu og skoraði eitt mark. Það var sigurmarkið í 1:0 sigri gegn Þjóðverjum.
Það spurðist út í vetur að verið væri að vinna í því að fá Milan
Jovanovic til Liverpool. Þetta var að sjálfsögðu á valdatíma Rafael Benítez og því varð nokkur óvissa um hvort Milan myndi koma til Liverpool þegar Rafa hætti störfum hjá Liverpool. Jafnvel var talið að Rafa myndi reyna að fá Milan til Inter Milan.
En nú er sem sagt komið á hreint að Milan mun ganga til liðs við Liverpool. Það segir sér sjálft að það hefur þurft að bíða eftir að nýr framkvæmdastjóri yrði ráðinn til Liverpool áður en endanlega var ákveðið að gera samning við hann. Roy Hodgson hefur greinilega litist á að fá Serbann í lið sitt. Að minnsta kosti er hann kominn í herbúðir Liverpool og við vonum að hann eigi eftir að láta hressilega að sér kveða.
TIL BAKA
Milan Jovanovic semur við Liverpool
Serbinn Milan Jovanovic hefur gert samning við Liverpool. Samningurinn gildir til þriggja ára. Milan er fyrsti leikmaðurinn sem Liverpool fær núna í sumar. Hann hafði þetta að segja á Liverpoolfc.tv í dag.,,Það er mér heiður að gera samning við eitt stærsta félagið í knattspyrnuheiminum. Ég get ekki beðið eftir að byrja að vinna með framkvæmdastjóranum og hitta nýju félaga mína í æfingabúðum okkar í Sviss."
Milan Jovanovic var síðustu fjögur árin hjá Standard Liege þar sem hann varð belgískur meistari árin 2008 og 2009. Hann var kjörinn Knattspyrnumaður ársins í Belgíu árið 2008 og vann Gullskóinn árið eftir. Milan, sem getur bæði leikið stöðu sóknarmanns og útherja, þótti mjög sterkur hjá Standard og skoraði töluvert af mörkum. Áður lék hann með Vojvodina, Shakhtar Donetsk og Lokomotiv í Moskvu.
Milan hefur leikið 29 landsleiki með Serbíu og skorað tíu mörk. Hann lék alla þrjá leiki Serba á Heimsmeistaramótinu og skoraði eitt mark. Það var sigurmarkið í 1:0 sigri gegn Þjóðverjum.
Það spurðist út í vetur að verið væri að vinna í því að fá Milan
Jovanovic til Liverpool. Þetta var að sjálfsögðu á valdatíma Rafael Benítez og því varð nokkur óvissa um hvort Milan myndi koma til Liverpool þegar Rafa hætti störfum hjá Liverpool. Jafnvel var talið að Rafa myndi reyna að fá Milan til Inter Milan. En nú er sem sagt komið á hreint að Milan mun ganga til liðs við Liverpool. Það segir sér sjálft að það hefur þurft að bíða eftir að nýr framkvæmdastjóri yrði ráðinn til Liverpool áður en endanlega var ákveðið að gera samning við hann. Roy Hodgson hefur greinilega litist á að fá Serbann í lið sitt. Að minnsta kosti er hann kominn í herbúðir Liverpool og við vonum að hann eigi eftir að láta hressilega að sér kveða.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

