| Sf. Gutt

Roy bjartsýnn með Steven

Roy Hodgson, hinn nýji framkvæmdastjóri Liverpool, segist vera bjartsýnn á að Steven Gerrard verði áfram hjá Liverpool.

Roy hitti þá Steven Gerrard og Jamie Carragher í síðustu viku. Roy segir þá félaga vera algjöra lykilmenn í félaginu og líkti þeim við hjartslátt þess inni á vellinum. Ekki þarf að óttast um að Jamie fari eitt eða neitt en margir fjölmiðlar hafa talið að Steven vilji fara. Roy hafi þetta að segja um stöðu fyrirliðans.

,,Ég geri svo sem ráð fyrir því að sú staða geti komið upp að önnur stórlið muni vilja kaupa Steven en hann hefur ekki sýnt nein merki þess að hann vilji fara. Það vill enginn hér hjá félaginu að hann fari og ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til að hann verði hérna áfram og ég hef trú á að hann fari ekki."
 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan