| Sf. Gutt

Af HM

Spánn er kominn í úrslit í Suður Afríku og Fernando Torres getur orðið heimsmeistari í knattspyrnu núna á sunnudaginn. Spánverjar komust í úrsitaleik Heimsmeistarakeppninnar eftir að hafa unnið 1:0 sigur á Þýskalandi í undanúrslitum í kvöld. Í úrslitunum mætast Spánverjar og Hollendingar. 

Undanúrslitaleikur Spánar og Þýskalands, sem fram fór í Durban, reyndist mikil rimma. Margir töldu að Þjóðverjar myndu hafa betur enda höfðu þeir leikið frábærlega fram að leiknum í kvöld. Á hinn bóginn þótti ýmsum að spænsku Evrópumeistararnir ættu töluvert inni og þeir ekki leikið eins vel og búist hafði við.

Að sjálfsögðu mættu bæði til ákveðin til leiks en fljótlega kom í ljós að Spánvrjar ætluðu ekki að láta Þjóðverja komast upp með sínar hröðu sóknir. Fernando Torres var á bekknum og kom það í sjálfu sér ekki á óvart. Ekkert hafði verið skorað þegar kom að leikhléi og ekki var mikið um færi í fyrri hálfleik.

Spánverjar voru mikið með boltann eftir leikhlé og um miðjan hálfleikinn var sókn liðsins orðin mjög þung. Þjóðverjar gáfu ekki þumlung eftir en Spánverjar voru hreinlega sterkari. Þeir komust svo yfir á 73. mínútu. Carles Puyol, leikmaður Barcelona, skoraði þá með gríðarlega föstum skalla eftir horn. Algjörlega magnaður skalli og harðfylgi Carles einstakt. Þetta var eina markið í leiknum og segjast verður að sterkara liðið hafi unnið. Fernando Torres lék síðustu níu mínúturnar.

Ekki náðu Þjóðverjar að hefna fyrir tapið fyrir Spánverjum í úrslitaleik Evrópukeppni landsliða fyrir tveimur árum og nú getur Spánn bætt enn frekar í verðlaunasafn sitt.
 
Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
 
Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.

Spánverjar munu mæta Hollendingum í úrslitaleik Heimsmeistarakeppninnar á sunnudaginn. Spánn hefur aldrei áður leikið til úrslita á HM og hvorug þjóðin hefur orðið heimsmeistari. Það verður því ný þjóð heimsmeistari að þessu sinni. 


 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan