| Sf. Gutt
TIL BAKA
Allir með hreint borð!
Það er kominn nýr maður í brúna á Anfiel og búast má við að einhverjir núverandi leikmenn Liverpool fari og aðrir komi í staðinn. Allir, sem skipa aðalliðshópinn þegar ný leiktíð hefst verða með hreint borð segir Roy Hodgson nýráðinn framkvæmdastjóri Liverpool. Roy segir að það væri heimska að gefa ekki öllum tækifæri til að spreyta sig og hann beindi orðum sínum ekki síst til ungliða Liverpool.
Mörgum stuðningsmönnum Liverpol fannst að tveir síðustu framkvæmdastjórar liðsins hefðu ekki verið nærri nógu duglegir að leyfa ungum leikmönnum að spreyta sig. Leikmenn á borð við Martin Kelly, Jay Spearing og Stephen Darby spiluðu ekki mikið á síðustu leiktíð en álit margra var að þeir hefðu vel getað skilað álíka góðu og jafnvel betra verki og ýmsir meðalmenn sem voru fengnir frá öðrum liðum. Jay og Stephen fengu góða reynslu á lánstíma sínum á lokakafla síðustu leiktíðar. Fleiri unga leikmenn mætti nefna sem væntanlega sjá nú möguleika á að fá tækifæri.
Svo er að sjá hvaða menn verða í aðalliðshópnum þegar keppnistímabilið hefst núna í lok þessa mánaðar. Fyrst og síðast skiptir þó öllu að allir í hópnum séu ákveðnir í að spila og standa sig fyrir Liverpool!

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan