| Sf. Gutt

Af HM

Holland er komið í úrslit í Suður Afríku og Dirk Kuyt getur orðið heimsmeistari í knattspyrnu núna á sunnudaginn. Hollendingar komust í úrsitaleik Heimsmeistarakeppninnar eftir að hafa unnið 3:2 sigur á Úrúgvæ í undanúrslitum í kvöld.

Undanúrslitaleikur Hollands og Úrúgvæ, sem fram fór í Höfaborg, var mjög skemmtilegur. Bæði lið léku sóknarleik og leikurinn var opnari en kannski von var á miðað við mikilvægi.

Holland komst yfir á 18. mínútu þegar vinstri bakvörðurinn Giovanni van Bronckhorst skoraði með ótrúlegu skoti af upp undir 30 metra færi. Boltinn fór stöngin inn í vinklinum. Á nokkurs vafa eitt fallegasta markið í keppninni. Margir áttu kannski von á því að Úrúgvæ myndi leggja árar í bát en svo var ekki og Diego Forlan jafnaði með bylmingsskoti utan vítateigs þegar fjórar mínútur voru til leikhlés.
 
Jafnt var á með liðunum framan af síðari hálfleik og alls ekki gott að ráða í hvort liðið myndi hafa betur. Það fór svo að Holland komst yfir á 70. mínútu þegar Wesley Sneijder skoraði með skoti frá vítateigslínunni í stöng og inn. Þremur mínútum seinna skoruðu þeir appelsínuklæddu aftur. Dirk sendi hárnákvæma sendingu fyrir frá vinstri á Arjen Robben sem skallaði í mark og enn fór boltinn í stöng og inn. Leikmenn Úrúgvæ virtust gefast upp við þetta en þeir náðu að minnka muninn í meiðslatíma þegar Maxi Pereira skoraði með skoti hægra megin úr vítateignum. Það sem eftir lifði áttu Hollendingar í vök að verjast en þeir höfðu sigurinn og komust í úrslitaleikinn þar sem þeir mæta annað hvort Spáni eða Þýskalandi. 

Dirk Kuyt var í byrjunarliðinu eins og í öllum leikjum Hollands til þess en Ryan Babel kom ekki við sögu frekar en áður. Dirk stóð sig vel. Auk þess að leggja upp markið sem réði úrslitum ógnaði hann marki Úrúgvæ nokkrum sinnum.

Hér
eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.

Hér eru myndir úr leiknum af vefsíðu BBC.

Holland hefur aldrei orðið heimsmeistari í knattspyrnu en tvívegis leikið til úrslita. Árið 1974 tapaði Holland 2:1 fyrir Vestur Þýskalandi og fjórum árum seinna máttu Hollendingar aftur þola tap í úrslitum. Þá töpuðu þeir 3:1 fyrir Argentínu.  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan