| Sf. Gutt

Fernando ánægður með nýja stjórann

Fernando Torres segist ánægður með að Roy Hodgson hafi verið ráðinn sem framkvæmdastjóri Liverpool. Hann er ekki búinn að tala við Roy og ætlar að klára Heimsmeistarakeppnina áður en hann ákveður framhaldið hjá sér.
 
Það er mikið undir hjá Fernando Torres og félögum hans í spænska landsliðinu en það leikur til undanúrslita við Þjóðverja á miðvikudagskvöldið. Hann hafði þetta að segja við blaðamenn suður í Afríku.  

,,Ég var ánægður með að hann fékk starfið. Ég er ekki búinn að spjalla við hann ennþá en ég á eftir að tala við hann fljótlega og við sjáum til hvaða hugmyndir hann er með framtíðina. Framtíðin hjá mér núna er hérna í Suður Afríku og Heimsmeistarakeppnin er alltof mikilvæg til ég geti núna verið að hugsa um hvað gerist eftir hana. Það er mikilvæg vika framundan hérna og þegar hún er liðin hef ég tíma til að tala við hann um framtíð mína."

,,Hann stóð sig virkilega vel hjá Fulham og ég er viss um að hann getur gert enn betur hjá Liverpool. Hann er mjög góður framkvæmdastjóri. Hann sýndi það á síðustu leiktíð með Fulham og hann hefur líka sýnt það áður. Vonandi er hann rétti maðurinn til að byggja upp sterkt lið Liverpool á nýjan leik."

Á dögunum sagði Fernando Torres í viðtali að það hafi verið best fyrir alla aðila að landi hans Rafael Benítez skyldi hafa hætt sem framkvæmdastjóri Liverpool. Það kemur svo í ljós eftir Heimsmeistarakeppnina hvort hann vill vinna með arftaka Rafa að því mikilvæga verkefni að koma Liverpool í baráttu um titla á nýjan leik.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan