| Sf. Gutt
Sextán liða úrslitunum á HM lauk í kvöld. Það fækkaði um tvo leikmenn Liverpool eftir leikina sem fóru fram í dag og kvöld. Liverpool á samt fjóra leikmenn í landsliðunum sem eru í undanúrslitum.
Argentímumenn og Þjóðverjar mættust í Höfðaborg eftir hádegið. Búist var við jafnri og mikilli rimmu en annað kom á daginn. Reyndar varð úr mikil rimma en Þjóðverjar burstuðu Silfurlendinga 4:0.
Thomas Möller kom Þjóðverjum yfir á 3. mínútu og þar með var tónninn gefinn. Ekki var meira skorað þar til á 67. mínútu þegar Miroslav Klose skoraði. Arne Freidrich bætti enn við á 74. mínútu og gerði út um leikinn. Miroslav skoraði svo annað mark sitt mínútu fyrir leikslok. Hann var að leika 100. landsleik sinn og er nú búinn að skora 14 mörk í lokakeppni HM. Það er einu marki minna en Brasilíumaðurinn Ronaldo sem á metið.
Algjör stórleikur hjá Þjóðverjum og lærisveinar Diego Maradona áttu ekki möguleika. Javier Mascherano og Maxi Rodriguez léku allan leikinn en settu ekki mark sitt á hann frekar en aðrir í argentínska liðinu.
Í kvöld leiddu Spánverjar og Paragvæ saman hesta sína í Jóhannesarborg. Fernando Torres var í byrjunarliði Spánverja. Einhverjum sparkspekingum kom það á óvart enda hefur Fernando alls ekki komist í gang það sem af er móts og ljóst er að hann er ekki búinn að ná sér eftir hnéaðgerðina sem hann fór í núna í vor. Jose Reina var á bekknum eins og venjulega.
Leikurinn var jafn og spennandi og strax varð ljóst að Evrópumeistararnir myndu ekki taka Paragvæ létt. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik. Líkt og í síðasta leik var Fernando skipt af velli snemma í síðari hálfleik. Paragvæ fékk vítaspyrnu á upphafskafla síðari háfleiks en Iker Casillas gerði sér lítið fyrir og varði frá Oscar Cardozo sem skoraði úr tveimur vítum fyrir Benfica gegn Liverpool á síðustu leiktíð. Í næstu sókn fékk Spánn víti og Xabi Alonso, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði. Dómarinn lét Xabi þó endurtaka vítið og þá varði Justo Villar frá honum. Spánn hefði svo átt að fá aftur víti í hamagangnum sem fylgdi á eftir.
Það mátti ekki í milli sjá þegar dró að leikslokum en Spánverjar herjuðu fram sigur þegar David Villa skoraði af stuttu færi á 82. mínútu. Hann fylgdi þá á eftir þegar skot frá Pedro fór í stöng. David skaut í báðar stengur og inn! Hann er nú markhæstur í keppninni með fimm mörk. Markið kom Spánverjum áfram og Evrópumeistararnir geta bætt Heimsmeistaratitlinum við!
Eftir leikinn þakkaði Iker Casillas Jose Reina fyrir aðstoð við að verja vítaspyrnuna. Sem fyrr segir þá skoraði Oscar Cardozo tvívegis úr vítaspyrnum gegn Liverpool í vetur. Fyrir leikinn í kvöld sagði Jose Iker frá vítspyrnuvenjum Oscar og það skilaði sér á ögurstundu!
Hér og hér eru myndir úr leikjunum af Liverpoolfc.tv.
Hér eru myndir úr leikjunum af vefsíðu BBC.
Undanúrslit fara fram að kveldi þriðjudags og miðvikudags. Fyrst mætast Holland og Úrúgvæ og svo Þýskaland og Spánn. Þjóðverjar fá þar tækifæri til að hefna fyrir úrslitaleikinn í Evrópukeppni landsliða fyrir tveimur árum þegar Spánn vann 1:0 með marki Fernando Torres!
Liverpool á enn fjóra fulltrúa eftir í keppninni. Þetta eru þeir Dirk Kuyt, Ryan Babel, Fernando Torres og Jose Reina. Ryan og Jose hafa enn ekki spilað í Suður Afríku.
TIL BAKA
Af HM
Sextán liða úrslitunum á HM lauk í kvöld. Það fækkaði um tvo leikmenn Liverpool eftir leikina sem fóru fram í dag og kvöld. Liverpool á samt fjóra leikmenn í landsliðunum sem eru í undanúrslitum.Argentímumenn og Þjóðverjar mættust í Höfðaborg eftir hádegið. Búist var við jafnri og mikilli rimmu en annað kom á daginn. Reyndar varð úr mikil rimma en Þjóðverjar burstuðu Silfurlendinga 4:0.
Thomas Möller kom Þjóðverjum yfir á 3. mínútu og þar með var tónninn gefinn. Ekki var meira skorað þar til á 67. mínútu þegar Miroslav Klose skoraði. Arne Freidrich bætti enn við á 74. mínútu og gerði út um leikinn. Miroslav skoraði svo annað mark sitt mínútu fyrir leikslok. Hann var að leika 100. landsleik sinn og er nú búinn að skora 14 mörk í lokakeppni HM. Það er einu marki minna en Brasilíumaðurinn Ronaldo sem á metið.
Algjör stórleikur hjá Þjóðverjum og lærisveinar Diego Maradona áttu ekki möguleika. Javier Mascherano og Maxi Rodriguez léku allan leikinn en settu ekki mark sitt á hann frekar en aðrir í argentínska liðinu.
Í kvöld leiddu Spánverjar og Paragvæ saman hesta sína í Jóhannesarborg. Fernando Torres var í byrjunarliði Spánverja. Einhverjum sparkspekingum kom það á óvart enda hefur Fernando alls ekki komist í gang það sem af er móts og ljóst er að hann er ekki búinn að ná sér eftir hnéaðgerðina sem hann fór í núna í vor. Jose Reina var á bekknum eins og venjulega.
Leikurinn var jafn og spennandi og strax varð ljóst að Evrópumeistararnir myndu ekki taka Paragvæ létt. Ekkert var skorað í fyrri hálfleik. Líkt og í síðasta leik var Fernando skipt af velli snemma í síðari hálfleik. Paragvæ fékk vítaspyrnu á upphafskafla síðari háfleiks en Iker Casillas gerði sér lítið fyrir og varði frá Oscar Cardozo sem skoraði úr tveimur vítum fyrir Benfica gegn Liverpool á síðustu leiktíð. Í næstu sókn fékk Spánn víti og Xabi Alonso, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði. Dómarinn lét Xabi þó endurtaka vítið og þá varði Justo Villar frá honum. Spánn hefði svo átt að fá aftur víti í hamagangnum sem fylgdi á eftir.
Það mátti ekki í milli sjá þegar dró að leikslokum en Spánverjar herjuðu fram sigur þegar David Villa skoraði af stuttu færi á 82. mínútu. Hann fylgdi þá á eftir þegar skot frá Pedro fór í stöng. David skaut í báðar stengur og inn! Hann er nú markhæstur í keppninni með fimm mörk. Markið kom Spánverjum áfram og Evrópumeistararnir geta bætt Heimsmeistaratitlinum við!
Eftir leikinn þakkaði Iker Casillas Jose Reina fyrir aðstoð við að verja vítaspyrnuna. Sem fyrr segir þá skoraði Oscar Cardozo tvívegis úr vítaspyrnum gegn Liverpool í vetur. Fyrir leikinn í kvöld sagði Jose Iker frá vítspyrnuvenjum Oscar og það skilaði sér á ögurstundu!
Hér og hér eru myndir úr leikjunum af Liverpoolfc.tv.
Hér eru myndir úr leikjunum af vefsíðu BBC.
Undanúrslit fara fram að kveldi þriðjudags og miðvikudags. Fyrst mætast Holland og Úrúgvæ og svo Þýskaland og Spánn. Þjóðverjar fá þar tækifæri til að hefna fyrir úrslitaleikinn í Evrópukeppni landsliða fyrir tveimur árum þegar Spánn vann 1:0 með marki Fernando Torres!
Liverpool á enn fjóra fulltrúa eftir í keppninni. Þetta eru þeir Dirk Kuyt, Ryan Babel, Fernando Torres og Jose Reina. Ryan og Jose hafa enn ekki spilað í Suður Afríku.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

