| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Mun halda áfram að drekka með Ferguson
Roy Hodgson nýráðinn framkvæmdastjóri Liverpool segir frá því í dag að hann hafi ekki stórar áhyggjur af því að vinskapur hans og Alex Ferguson sé í hættu.

Ferguson og Hodgson er vel til vina og Hodgson grínaðist með það í viðtali við Sunday Express í dag að hann væri ekki viss um að Ferguson myndi bjóða sér í glas aftur, eftir að Roy dirfðist að skrifa undir samning við erkifjendurna.
,,Ég veit að Alex er ekki beint Liverpool aðdáandi þannig að ég hef smá áhyggjur af vinskap okkar", segir Roy og hlær við.
,,Grínlaust þá mun þetta nýja starf mitt ekki hafa nokkur áhrif á okkar samband. Við munum áfram fá okkur í glas og ræða málin, en kannski þurfum við að gera það í laumi í framtíðinni!"
Hodgson segist gera sér fulla grein fyrir rígnum á milli nágrannanna í norðrinu, en hann segist vera þeirrar skoðunar að slíkur rígur eigi ekki að vera á persónulegum nótum.
,,Rígur milli félaga á fullan rétt á sér og er hluti af leiknum. Þannig á það að vera. En framkvæmdastjórar eiga ekki að munnhöggvast í fjölmiðlum. Það er mín skoðun. Svona hlutir mega ekki verða of persónulegir."

Það er því allt útlit fyrir að sambandið milli framkvæmdastjóra þessara tveggja sigursælustu félaga í ensku knattspyrnunni verði heldur betra en það var í tíð Rafael Benítez, en eins og menn muna voru hann og Alex Ferguson ekki neinir perluvinir.
,,Liðin hafa bæði unnið 18 meistaratitla. Auðvitað vona ég að Liverpool verði fyrr til að ná í þann nítjánda, en fari það svo að Alex verði á undan þá mun það engu breyta um okkar persónulega vinskap."
,,Ég vil einbeita mér að því að gera Liverpool að betra liði. Til þess að það megi gerast þarf að endurvekja hin gömlu gildi sem voru í hávegum höfð hjá félaginu. Á sínum tíma var ekkert lið betra í að senda boltann á milli sín, hlaupa í eyður og búa til pláss. "Pass and move" er aðferð sem ég vil að liðið beiti á ný. Sú aðferð gerði liðið að stórveldi á sínum tíma. Það var öðru fremur uppskriftin að góðu gengi liðsins á gullaldarárunum."

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan