| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Leggur áherslu á að ná í breska leikmenn
Roy Hodgson segist ætla að leggja áherslu á að klófesta enska leikmenn þegar hann ryðst út á leikmannamarkaðinn á næstu dögum.

Hodgson hefur áður sagt að forgangsverkefni hans verði að ræða við núverandi leikmenn félagsins og auðvitað að reyna að sannfæra helstu stjörnurnar um að vera um kyrrt hjá Liverpool. Þar á hann aðallega við Fernando Torres, Steven Gerrard og Javier Mascherano.
Hodgson hefur að auki sagt að það sé nauðsynlegt að styrkja leikmannahópinn enn frekar fyrir komandi tímabil.
,,Ekkert félagslið í veröldinni átti fleiri leikmenn á HM, en það breytir því ekki að þegar maður lítur yfir allan leikmannahópinn þá virðist hann fremur þunnskipaður, samanborið við toppliðin", segir Hodgson.
Hodgson mun nú þegar vera farinn að skima eftir nýjum leikmönnum til að styrkja hópinn, en ljóst er að hann mun ekki fá ótakmörkuð fjárráð til þeirra verka eins og staða félagsins er.
Nýjar reglur Úrvalsdeildarinnar þar sem farið er fram á að við lok hvers félagaskiptatímabils skuli minnst 8 leikmenn í 25 manna hópnum vera innfæddir taka gildi næsta tímabil og Hodgson mun því leggja sérstaka áherslu á að krækja í breska leikmenn. Það kann þó að gera honum enn erfiða fyrir að finna frambærilega leikmenn á viðráðanlegu verði, því þekkt er að góðir enskir leikmenn eru margir hverjir óeðlilega dýrir.
Samkvæmt fréttum í enskum slúðurblöðum í dag mun Ashley Young leikmaður Aston Villa vera efstur á óskalista Hodgson.

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan