| Sf. Gutt

Kenny og Ian ánægðir með ráðningu Roy

Goðsagnirnar Kenny Dalglish og Ian Rush segjast ánægðir með ráðningu Roy Hodgson sem framkvæmdastjóra Liverpool. Báðir voru þeir ráðnir til starfa hjá Liverpool í valdatíð Rafael Benítez og vonandi munu þeir halda áfram að vinna hjá félaginu nú þegar Roy hefur tekið við.  

Kenny Dalglish: Mér líst mjög vel á ráðninguna. Ég hef þekkt Roy lengi og ber mikla virðingu fyrir honum. Við erum ekki ennþá búnir að ræða náið saman en hollusta mín liggur hjá Liverpool.

Ian Rush: Ég þekki Roy nokkuð vel og ég tel að það hafi verið gott að ráða hann. Hann er mjög snjall að leggja upp leikaðferðir, er virtur um alla Evrópu og ef maður skoðar ferilskrá hans sést að hann hefur víða farið. Hann hefur sýnt að hann getur bæði stýrt félags- og landsliðum. Svo hefur hann stjórnað stórum félögum eins og Inter Milan.

Síðasta leiktíð olli vonbrigðum og nú verðum við að halda áfram saman. Allir sem ég þekki hafa mikið álit á Roy og hann verðskuldar að allir standi við bakið á honum og styðji hann. Markmiðið hjá Roy, á næsta keppnistímabili, hlýtur að vera að koma liðinu aftur í Meistaradeildina þar sem það á heima.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan