| Sf. Gutt
Dirk Kuyt og félagar hans í hollenska landsliðinu eru ekki tilbúnir að fara í sumarfrí. Í dag komust þeir í undanúrslit þar sem þeir mæta Úrúgvæ.
Hollendingar mættu Brasilíumönnun, í Port Elisabeth, í fyrsta leiknum í átta liða úrslitum eftir hádegið. Brasilíumenn höfðu tögl og hagldir í fyrri hálfleik og náðu forystu á 10. mínútu. Robinho kom Álfu- og Suður Ameríkumeisturunum yfir þegar hann skoraði eftir magnaða stungusendingu frá Felipe Melo.
Dæmið snerist við eftir leikhlé þegar Felipe Melo skallaði fyrirgjöf í eigið mark á 53. mínútu. Eftir þetta höfðu Hollendingar undirtökin og á 68. mínútu skoraði Wesley Sneijder með skalla eftir horn. Dirk Kuyt framlengdi hornspyrnuna á Wesley með því að skalla aftur fyrir sig. Hollendingar héldu út til leiksloka og það kom þeim vel að Felipe var rekinn af velli þegar rúmur stundarfjórðungur var til eftir.
Holland er þar með komið í undanúrslit á HM. Þangað komust hollenskir síðast árið 1998 en töpuðu þá fyrir Brasilíu. Brasilía sló Holland líka út 1994 þannig að sigurinn í dag var mjög sætur. Dirk Kuyt átti mjög góðan leik með Hollendingum. Fyrir utan að vera harðduglegur að venju þá lagði hann upp sigurmark Hollendinga.
Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Úrúgvæ tryggði sér leikrétt gegn Hollendingum í kvöld eftir að hafa unnið Gana 4:2 í vítaspyrnukeppni. í Jóhannesarborg. Staðan var 1:1 eftir framlengdan leik. Sulley Muntari kom Gana yfir með langskoti af lengri gerðinni á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Diego Forlan jafnaði úr aukaspyrnu stuttu eftir leikhlé. Gana fékk svo upplagt færi til að tryggja sér sigur með síðasta sparki leiksins en vítaspyrna Asamoah Gyan strauk þverslána og fór yfir!
Hér eru myndir úr leikjunum af vefsíðu BBC.
TIL BAKA
Af HM
Dirk Kuyt og félagar hans í hollenska landsliðinu eru ekki tilbúnir að fara í sumarfrí. Í dag komust þeir í undanúrslit þar sem þeir mæta Úrúgvæ.Hollendingar mættu Brasilíumönnun, í Port Elisabeth, í fyrsta leiknum í átta liða úrslitum eftir hádegið. Brasilíumenn höfðu tögl og hagldir í fyrri hálfleik og náðu forystu á 10. mínútu. Robinho kom Álfu- og Suður Ameríkumeisturunum yfir þegar hann skoraði eftir magnaða stungusendingu frá Felipe Melo.
Dæmið snerist við eftir leikhlé þegar Felipe Melo skallaði fyrirgjöf í eigið mark á 53. mínútu. Eftir þetta höfðu Hollendingar undirtökin og á 68. mínútu skoraði Wesley Sneijder með skalla eftir horn. Dirk Kuyt framlengdi hornspyrnuna á Wesley með því að skalla aftur fyrir sig. Hollendingar héldu út til leiksloka og það kom þeim vel að Felipe var rekinn af velli þegar rúmur stundarfjórðungur var til eftir.
Holland er þar með komið í undanúrslit á HM. Þangað komust hollenskir síðast árið 1998 en töpuðu þá fyrir Brasilíu. Brasilía sló Holland líka út 1994 þannig að sigurinn í dag var mjög sætur. Dirk Kuyt átti mjög góðan leik með Hollendingum. Fyrir utan að vera harðduglegur að venju þá lagði hann upp sigurmark Hollendinga.
Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Úrúgvæ tryggði sér leikrétt gegn Hollendingum í kvöld eftir að hafa unnið Gana 4:2 í vítaspyrnukeppni. í Jóhannesarborg. Staðan var 1:1 eftir framlengdan leik. Sulley Muntari kom Gana yfir með langskoti af lengri gerðinni á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Diego Forlan jafnaði úr aukaspyrnu stuttu eftir leikhlé. Gana fékk svo upplagt færi til að tryggja sér sigur með síðasta sparki leiksins en vítaspyrna Asamoah Gyan strauk þverslána og fór yfir!
Hér eru myndir úr leikjunum af vefsíðu BBC.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

