| Sf. Gutt

Stoltur og spenntur!

Roy Hodgson segist bæði vera stoltur og spenntur yfir því að vera orðinn framkvæmdastjóri Liverpool. Hann segir starfið verða erfitt en hann muni leggja sig allan fram.

,,Ég er gríðarlega stoltur. Það er eiginlega ekkert félag sem jafnast á við þetta hvað varðar knattspyrnu og framkvæmdastjórana sem hér hafa starfað. Ég gat ekki með nokkru móti hafnað þessu tækifæri. Ég er bæði stoltur og spenntur yfir að fá að sinna því starfi að vera framkvæmdastjóri Liverpool."

Roy þurfti ekki að hugsa sig um þegar starf framkvæmdastjóra Liverpool bauðst en hann gerir sér fulla grein fyrir því að hann á mikið verk fyrir höndum og starfið verður ekki neinn dans á rósum.

,,Það felst mikil áskorun í þessu starfi en það væri mjög erfitt að finna starf sem ég hefði áhuga á og krefðist ekki mikils af mér. Ég hef tekið að mér nokkuð mörg störf sem hafa falið í sér mikla áskorun. Ég myndi segja að hefðir og stærð þessa félags jafnist á við Inter Milan þegar ég réði mig þangað."

,,En þó að maður ráði sig í starf hjá félagi sem er eitthvað minna þá felast stórar áskoranir í öllum störfum. Öll félög eiga sér sín vandamál og úrlausnarefni sem þarf að leysa úr og þess vegna er alltaf ætlast til að þú sem framkvæmdastjóri og þjálfari gerir eitthvað í því að laga það sem þarf að bæta. Ég hlakka til að takst á við þessa áskorun en ég get ekki neitað því að þetta er mikil áskorun og verkefnið sem bíður verður ekki auðvelt."

,,Það er auðvelt að styðja þann sem er á sigurbraut en það er svolítið erfiðara að styðja liðið sem þér þykir svo vænt um þegar því gengur ekki eins vel og áður. Ég þekki alla framkvæmdastjóra sem hafa verið hérna. Ég þekki Gerard Houllier mjög vel og ég hef rætt við hann. Allir segja mér að þetta sé frábært félag og hinir stórgóðu stuðningsmenn þess standi að baki félaginu á hverju sem gengur. Ég vona bara að stuðningsmennirnir muni styðja mig í starfi. Ég mun gera mitt besta fyrir þá. Meiru get ég ekki lofað þeim"



Fyrsti dagur Roy Hodgson sem framkvæmdastjóri Liverpool var annasamur og hann lét hendur strax standa fram úr ermum. Hann fór á æfingu á Melwood í morgun og eftir hádegi var blaðamannafundur þar sem hann og Martin Broughton, stjórnarformaður Liverpool, sátu fyrir svörum. Eftir fundinn fóru Roy og Martin út á Anfield í myndatöku. Eftir það hefur hann án nokkurs vafa gengið í að hafa samband við þá leikmenn Liverpool sem hann hitti ekki í morgun. Að minnsta kosti sagði Roy að hann ætlaði sér að hafa samband við alla leikmenn Liverpool á allra næstu dögum. Svo er spurning hvort hann hefur sett sig í samband við einhverja aðra leikmenn en nú eru hjá Liverpool!

Það verður í mörg horn að líta hjá Roy Hodgson næstu daga og vikur og það er næsta víst að hans bíður ekki rólegt helgarfrí!

Hér eru myndir, af Liverpoolfc.tv, af því sem Roy Hodgson hafði fyrir stafni á sínum fyrsta starfsdegi hjá Liverpool F.C.

Hér eru myndir frá fyrsta starfsdegi Roy af heimasíðu dagblaðsins Echo.  









TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan