| Sf. Gutt

Undirbúningur hafinn!

Sumarfríið er búið og leikmenn Liverpool mættu til æfinga í dag. Að sjálfsögðu voru ekki þeir leikmenn mættir sem enn eru suður í Afríku og ekki heldur þeir sem þar voru. Aðrir hófu æfingar.    

Nýi framkvæmdastjóri Liverpool Roy Hodgson mætti á Melwood og fylgdist með eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Ekki er enn vitað hvernig þjálfaralið Liverpool verður skipað undir stjórn Roy. Einhverjir sem unnu með Rafael Benítez hætta og nýir menn, sem Roy ræður, koma í þeirra stað.

Talið er að Sammy Lee, sem var helsti aðstoðarmaður Rafael, verði áfram hjá Liverpool. Hann var að minnsta kosti á æfingunni í morgun. Fregnir herma að Roy vilji hafa Sammy í þjálfaraliði sínu því hann þekkir félagið og innviði þess eins og handarbakið á sér.

Liverpool leikur sinn fyrsta æfingaleik 17. júlí og í lok mánaðarins hefst alvaran þegar forkeppni Evrópudeildarinnar fer í gang.  
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan