| Sf. Gutt

Steven og Jamie ánægðir

Þeir Steven Gerrard og Jamie Carragher segjast ánægðir með að Roy Hogdson hafi verið ráðinn framkvæmdastjóri Liverpool. Þeir höfðu þetta að segja á Liverpoolfc.tv í morgun.

Steven Gerrard: ,,Roy Hodgson er góður kostur og félagið fékk góðan mann í starfið. Rafa fór fyrir nokkrum vikum og ég veit að forráðamenn félagsins voru ákveðnir í að gefa sér góðan tíma í að finna rétta manninn í starfið. Roy býr yfir gríðarlega mikilli reynslu og ég trúi því að hann sé rétti maðurinn fyrir Liverpool. Ég held að það hafi verið þess virði að gefa sér tíma í að finna manninn sem talinn var sá rétti og ég er viss um að hann er núna tilbúinn að hefja störf og drífa í að koma sínum hugmyndum í framkvæmd áður en ný leiktíð hefst."

Jamie Carragher: ,,Ég hlakka virkilega til að fá tækifæri til að vinna með Roy Hodgson því hann hefur mjög gott orðspor í knattspyrnuhiminum og svo er hann einn reyndasti framkvæmdastjóri í heiminum. Að undanförnu hefur verið óvissa um margt en ráðning hans hefur veitt öllum hérna hvatningu."














TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan