| Sf. Gutt

Roy Hodgson ráðinn framkvæmdastjóri Liverpool!

Roy Hodgson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Liverpool til næstu þriggja ára. Hann tekur við störfum núna í dag. Þetta var staðfest á heimasíðu Liverpool núna í morgun. Þar segir í fréttinni sem staðfestir ráðninguna.

,,Roy Hodgson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Liverpool. Hann er 62. ára og hefur áður stýrt Fulham, Inter Milan og landsliði Sviss. Hann hefur gert þriggja ára samning við félagið og verður þar með 18. framkvæmdastjóri í sögu okkar. Hann verður kynntur til sögunnar fyrir fjölmiðlum heimsins seinni partinn í dag eftir að hafa stjórnað fyrstu æfingunni á undirbúningstímabilinu á Melwood."

,,Hodgson kemur til okkar frá Fulham þar sem hann stýrði Cottagers í úrslitasæti í Evrópudeildinni í maí og var í kjölfarið kjörinn Framkvæmdastjóri ársins af Samtökum framkvæmdastjóra.

Roy Hodgson hafði þetta sjálfur að segja á Liverpoolfc.tv. núna í morgun. ,,Þetta er stærsta starfið í knattspyrnuheiminum og mér er það mikill heiður að taka við stöðu framkvæmdastjóra sigursælasta knattspyrnufélags á Bretlandi. Ég hlakka til að hitta leikmennina, stuðningsmennina og koma mér að verki á Melwood."

Liverpool klúbburinn á Íslandi óskar Roy Hodgson velfarnaðar í starfi.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan