L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
26.06.2010 18:06
|
Heimir Eyvindarson
Af HM
10 af þeim 12 leikmönnum Liverpool sem hófu leik á HM eru komnir áfram í 16 liða úrslitin. Aðeins Daniel Agger og Sotirios Kyrgiakos (sjá mynd) eru farnir heim. Þá er tilvonandi liðsmaður Liverpool, Serbinn Jovanovic, einnig á heimleið.
16 liða úrslitin hófust í dag með leik Uruguay og Suður-Kóreu, þar sem Uruguay hafði betur 2-1. Seinni leikur dagsins er síðan viðureign Bandaríkjanna og Ghana þannig að ljóst er að enginn leikmaður Liverpool kemur við sögu í HM-leikjum dagsins.
Á morgun verða hinsvegar fleiri rauðliðar á ferðinni. Nokkuð öruggt er að Steven Gerrard og Glen Johnson verða í byrjunarliði Englendinga, sem mæta Þjóðverjum kl. 14.00 á morgun. Þá er einnig möguleiki að Jamie Carragher fái náð fyrir augum Capello, en það verður þó að teljast fremur ólíklegt.
Eins og menn muna kom Carra inn í byrjunarliðið þegar Ledley King meiddist, en var svo óheppinn að næla sér í tvö spjöld og missa þar með af síðasta leik riðlakeppninnar, gegn Slóvenum. Matthew Upson kom inn í liðið í stað Carragher í þeim leik og stóð sig vel. Þá herma fregnir úr herbúðum enskra að Ledley King sé farinn að æfa aftur þannig að líkurnar á að Carragher verði með á morgun verða að teljast harla litlar.
Í seinni viðureign morgundagsins mætast Argentína og Mexíkó og þá gætu tveir Liverpool menn verið í baráttunni. Maxi Rodriguez hefur tekið þátt í öllum leikjum Argentínu á mótinu til þessa, en Javier Mascherano var hvíldur í síðast leik liðsins þar sem hann var á gulu spjaldi. Mascherano er fyrirliði liðsins og yfirleitt sjálfskipaður í liðið þannig að það verður að teljast líklegt að a.m.k. fjórir Liverpool leikmenn veri í eldlínunni í HM-leikjum morgundagsins.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir