Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar lýkur hér og nú. Tólfti og allra síðastur er Ryan Babel.
Nafn: Ryan Babel.
Fæðingardagur: 19.12.1986.
Fæðingarstaður: Amsterdam í Hollandi.
Staða: Útherji eða framherji.
Félög á ferli: Ajax og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 26.03.2005 gegn Rúmeníu.
Landsleikjafjöldi: 39.
Landsliðsmörk: 5.
Leikir með Liverpool: 129.
Mörk fyrir Liverpool: 20.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Ryan náði sér ekki á strik frekar en flestir leikmenn Liverpool. Hann var líka ekki skynsamur í því hvernig hann hagaði sér fyrir framan tölvuna sína! Hann fékk fleiri tækifæri þegar dró að lokum leiktíðar og náði að spila þokkalega á köflum.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem kann margt fyrir sér. Hann hefur á hinn bóginn átt erfitt með að sýna getu sína inni á vellinum.
Hver er staða Ryan í landsliðinu? Ryan hefur verið fastamaður í landsliðshópnum síðustu árin en hann hefur ekki verið fastamaður í byrjunarliðinu.
Hvað um Holland? Holland vann riðil sinn í undankeppninni af miklu öryggi. Liðið er vel mannað og ef vel tekst til er alls ekki útilokað að það geti náð langt í þessari keppni.
Aþjóðlegir titlar Hollands: Evrópumeistarar landsliða 1988.
Besti Hollendingur allra tíma? Johann Cruyff. Þessi snillingur hóf ferilinn á unga aldri með Ajax áður en hann lagði heiminn að fótum sér með Barcelona. Endaði svo ferilinn heima í Hollandi. Vann þó aldrei stórtitil með hollenska landsliðinu.
Vissir þú? Ryan notar Twitter!
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.
