L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
18.06.2010 23:06
|
Sf. Gutt
Af HM
Allir þrír fulltrúar Liverpool í enska landsliðinu léku í kvöld þegar það mætti Alsír í fyrsta sinn í sögunni. Leiknum lauk án marka og enska liðið var hroðalega slakt. Þeir Steven Gerrard, Jamie Carragher og Glen Johnson voru hvorki verri né betri en aðrir leikmenn enska liðsins.
Enska liðið er nú með tvö stig eftir tvö jafntefli. Þrátt fyrir að hafa valdið miklum vonbrigðum í keppninni hingað til þá komast Englendingar áfram með sigri á Slóvenum í síðasta leik sínum í riðlinum. En til þess verður liðið að spila miklu betur en í fyrstu tveimur leikjum sínum.
Einn, hugsanlega tilvonandi, leikmaður Liverpool stóð sig betur en þeir þrír sem hann á vonandi eftir að spila með gangi hann til liðs við Rauða herinn. Milan Jovanovic skoraði eina mark leiksins þegar Serbar komu á óvart og unnu Þjóðverja. Milan skoraði stuttu fyrir leíkhlé með snjöllu skoti af stuttu færi. Hann lék vel í leiknum og lagði sitt af mörkum í sigri Serba sem nú hafa þrjú stig eftir tap í fyrsta leik. Þeir eiga nú möguleika á að komast upp úr sínum riðli.
Hér
eru myndir úr leik Englendinga af vefsíðu Liverpoolfc.tv.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir