| Sf. Gutt

Af HM

Mynd með fréttÞað var nú kannski ekki þjóðhátíð í Argentínu og Grikklandi eins og hér á Íslandi en í þeim löndum gladdist fólk vel og innilega í dag eftir góða sigra landsliða sinna.

Javier Mascherano og Maxi Rodriguez voru báðir í liði Argentínu sem mætti Suður Kóreu. Argentína sýndi stórgóðan leik og vann 4:1. Park Chu-Young skoraði sjálfsmark og kom Argentínu á bragðið. Framherji Real Madrid Gonzalo Higuain skoraði svo þrennu. Lee Chung-Yong skoraði mark Kóreu og minnkaði muninn í 2:1. Argentínumenn eru þar sem svo til komnir í sextán liða úrslit. 

Javier var sterkur á miðjunnni og Maxi stóð sig vel og átti þátt í öðru marki Argentínu.

Grikkir lögðu Nígeríumenn 2:1. Það kom ekki á óvart, eftir slaka vörn Grikkja í fyrsta leik, að Sotirios Kyrgiakos var í byrjunarliðinu í dag. Hann átti eftir að spila mjög vel og vörnin batnaði sannarlega. Nígeríumenn komust yfir en Grikkir sneru leiknum sér í hag, eftir að Nígería missti mann af velli, og unnu 2:1.
 
Sigur Grikklands var sögulegur því þetta var fyrsti sigurinn sem liðið vinnur í úrslitakeppni HM og það sem meira er þá hafði Grikkjum ekki tekist að skora á HM fyrir þennan leik. Sem sagt góður dagur hjá Grikkjum og ekki þörf á að gleðja þá þjóð eftir erfiða tíð að undanförnu.  

Hér og hér eru myndir úr leikjunum, sem hér um ræðir, af Liverpoolfc.tv.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan