L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
15.06.2010 23:06
|
Sf. Gutt
AF HM
Martin Skrtel og félagar hans frá Slóvakíu hófu keppni í Suður Afríku í gær. Þetta var söguleg stund fyrir Slóvaka því þeir hafa ekki áður leikið í úrslitakeppni á stórmóti í knattspyrnu.
Slóvakar mættu Nýja Sjálandi og voru lengst af heldur sterkari aðilinn. Robert Vittek kom þeim yfir í upphafi síðari hálfleiks með skalla. Reyndar hefði markið ekki átt að standa því hann var rangstæður. Allt stefndi í sigur Slóvaka þegar Winston Reid náði að jafna með skalla. Jafntefli varð 1:1 og verða það að teljast ein óvæntustu úrslitin á HM hingað til. Þetta var fyrsta stig sem Nýja Sjáland fær á HM en þeir töpuðu öllum sínum þremur leikjum árið 1982 þegar þeir kepptu fyrst.
Martin stóð sig vel í vörninni en reyndar reyndi ekki mikið á hann og félaga hans í öftustu vörn. Þeir sofnuðu þó á verðinum á versta tíma og Slóvakar máttu sætta sig við jafntefli. Vonbrigði þeirra voru mikil eins og glögglega mátti sjá.
Hér
eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.tv.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir