| Ólafur Haukur Tómasson
Rafael Benítez var opinberaður sem knattspyrnustjóri Inter Milan eftir að hafa sagt skilið við starf sitt hjá Liverpool. Hann fór fögrum orðum yfir sínu gamla félagi og sagðist kveðja það með söknuði. Hann kom einnig með ábendingu til eigenda félagsins um hver ætti að vera eftirmaður hans. Hann vill sjá Kenny Dalglish við stjórnartaumana hjá Liverpool líkt og fjölmargir stuðningsmenn félagsins.
"Mér finnst að þeir ættu að horfa til Kenny Dalglish. Hann er besti maðurinn í starfið. Eigendurnir ættu að hlusta á stuðningsmennina því þeir eru óánægðir. Það þekkir engin félagið betur en Dalglish og hann yrði fullkominn þarna. Hann vill starfið og að mínu mati ætti hann að fá það." sagði Rafa.
Sögur um að Rafa hafi þurft að víkja vegna ósættis við einhverja leikmenn liðsins en hann þaggar niður í þeim sögum og segist meira að segja hafa fengið góða kveðju frá Steven Gerrard, sem er sagður hafa verið hvað ósáttastur með stjóra sinn.
"Áður en ég fór talaði ég við 95 prósent af leikmönnunum og heyrði í Steven Gerrard á afmælisdegi hans. Meiri hlutinn þakkaði mér fyrir allt. Ég talaði við Gerrard og hann var í lagi. Í rauninni óskaði hann mér alls hins besta. Ég yfirgaf á jákvæðu nótunum og sambandið við leikmennina var gott.
Það var erfitt fyrir mig að yfirgefa Liverpool. Það var mjög erfitt og það tók mig sárt að fara. Það var ekki auðvelt vegna þess að stuðningsmennirnir í Kop voru alltaf frábærir fyrir mig. Allir stuðningsmennirnir voru þannig. Það var sorgardagur þegar ég fór en það var eitthvað sem ég þurfti að gera." bætti hann við.
Talið er að kalt hafi verið á milli Rafa og eigenda Liverpool, Tom Hicks og George Gillett, en orðastríð hafði áður farið fram þeirra á milli í fjölmiðlum og ýmsum brögðum beitt. Hugsanlega gæti það hafa haft eitthvað að segja til um það að hann hafi farið frá félaginu og heldur Rafa uppteknum hætti með því að gefa eigendunum ráð varðandi það hvernig á að gera félagið betra.
TIL BAKA
Rafa: Hlustið á stuðningsmennina!
Rafael Benítez var opinberaður sem knattspyrnustjóri Inter Milan eftir að hafa sagt skilið við starf sitt hjá Liverpool. Hann fór fögrum orðum yfir sínu gamla félagi og sagðist kveðja það með söknuði. Hann kom einnig með ábendingu til eigenda félagsins um hver ætti að vera eftirmaður hans. Hann vill sjá Kenny Dalglish við stjórnartaumana hjá Liverpool líkt og fjölmargir stuðningsmenn félagsins."Mér finnst að þeir ættu að horfa til Kenny Dalglish. Hann er besti maðurinn í starfið. Eigendurnir ættu að hlusta á stuðningsmennina því þeir eru óánægðir. Það þekkir engin félagið betur en Dalglish og hann yrði fullkominn þarna. Hann vill starfið og að mínu mati ætti hann að fá það." sagði Rafa.
Sögur um að Rafa hafi þurft að víkja vegna ósættis við einhverja leikmenn liðsins en hann þaggar niður í þeim sögum og segist meira að segja hafa fengið góða kveðju frá Steven Gerrard, sem er sagður hafa verið hvað ósáttastur með stjóra sinn.
"Áður en ég fór talaði ég við 95 prósent af leikmönnunum og heyrði í Steven Gerrard á afmælisdegi hans. Meiri hlutinn þakkaði mér fyrir allt. Ég talaði við Gerrard og hann var í lagi. Í rauninni óskaði hann mér alls hins besta. Ég yfirgaf á jákvæðu nótunum og sambandið við leikmennina var gott.
Það var erfitt fyrir mig að yfirgefa Liverpool. Það var mjög erfitt og það tók mig sárt að fara. Það var ekki auðvelt vegna þess að stuðningsmennirnir í Kop voru alltaf frábærir fyrir mig. Allir stuðningsmennirnir voru þannig. Það var sorgardagur þegar ég fór en það var eitthvað sem ég þurfti að gera." bætti hann við.
Talið er að kalt hafi verið á milli Rafa og eigenda Liverpool, Tom Hicks og George Gillett, en orðastríð hafði áður farið fram þeirra á milli í fjölmiðlum og ýmsum brögðum beitt. Hugsanlega gæti það hafa haft eitthvað að segja til um það að hann hafi farið frá félaginu og heldur Rafa uppteknum hætti með því að gefa eigendunum ráð varðandi það hvernig á að gera félagið betra.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

