L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
15.06.2010 09:06
|
Sf. Gutt
Yossi á leið til Chelsea?
Fjölmargir fjölmiðlar greina frá því að Yossi Benayoun muni fljótlega ganga til liðs við Englands- og bikarmeistara Chelsea. Ísraelsmaðurinn mun gjarnan vilja fara þangað sjálfur. Hann þekkir vel til í Lundúnum en þar lék hann með West Ham United áður en Liverpool keypti hann þaðan sumarið 2007.
Samkvæmt fréttunum þá hefur Yossi samþykkt tilboð Chelsea um samning sem á að gilda í fjögur ár. Sá hængur er þó á, frá sjónarhóli Yossi, að forráðamenn Liverpool og Chelsea greinir töluvert á um hvað á að borga fyrir kappann. Í frétt, á vefsíðu Guardian, segir að Chelsea vilji borga um fjórir milljónir punda en Liverpool á að vilja nær tíu milljónum fyrir sinn snúð.
Hvað svo sem verður úr samningaviðræðum um kaupverð þá verður að telja líklegt að Yossi Benayoun muni yfirgefa Liverpool núna síðar í sumar.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir