Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Áttundi í röðinni er Martin Skrtel.
Nafn: Martin Skrtel.
Fæðingardagur: 15.12.1984.
Fæðingarstaður: Handlova í Slóvakíu.
Staða: Miðvörður.
Félög á ferli: FC Previdza, FC Trencin, Zenit St Petersburg og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 09.07.2004 gegn Japan.
Landsleikjafjöldi: 38.
Landsliðsmörk: 5.
Leikir með Liverpool: 79.
Mörk fyrir Liverpool: 1.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Martin meiddist á kjálka eftir samstuð við Jamie Carragher í fyrsta leik og var mjög óöruggur lengi á eftir hvort sem því var um að kenna eða ekki. Hann var svo farinn að ná sér á strik eftir áramótin þegar hann ristarbrotnaði.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Martin er mjög sterkur miðvörður. Hann er grimmur í tæklingum og gefur ekki tommu eftir í loftbardögum.
Hver er staða Martin í landsliðinu? Martin hefur verið fastamaður í liði Slóvaka undanfarin ár. Ristarbrotið, sem fyrr er getið, var varla gróið þegar HM hópurinn var valinn en Martin var að sjálfsögðu tekinn í hópinn.
Hvað um Slóvakíu? Það var þjóðhátíð þegar Slóvakía náði sæti í Suður Afríku því það var í fyrsta sinn sem landslið þjóðarinnar komst í úrslitakeppni á stórmóti.
Alþjóðlegir titlar Slóvaka: Engir hingað til.
Besti Slóvaki allra tíma? Það er ekki gott að segja því Slóvakía hefur ekki verið lengi sjálfstæð þjóð í alþjóðaknattspyrnu. Martin er líklega með þeim betri!
Vissir þú? Martin æfði íshokkí á yngri árum og þótti mjög efnilegur í þeirri grein.
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.