| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku

Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Sjöundi í röðinni er Glen Johnson.

Nafn: Glen Johnson.
 

Fæðingardagur: 23.08.1984.

Fæðingarstaður: London á Englandi.

Staða: Bakvörður.

Félög á ferli: West Ham United, Millwall (lánsmaður), Chelsea, Portsmouth og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 16.11.2003 gegn Danmörku.

Landsleikjafjöldi: 22.

Landsliðsmörk: 1.

Leikir með Liverpool: 35.

Mörk fyrir Liverpool: 3.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Glen byrjaði mjög vel á leiktíðinni og færði nýja vídd í leik Liverpool með mögnuðum rispum fram hægri kantinn. Það dró svo af honum og rétt fyrir áramót meiddist hann illa. Það tók hann nokkurn tíma að komast í gang á nýjan leik eftir meiðslin.

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Glen er eldfljótur og leikinn leikmaður með góða boltatækni. Mörgum finnst að hann ætti frekar að spila á hægri kantinum en í stöðu bakvarðar og þá ekki síst vegna þess að hann er ekki alltaf nógu öruggur í vörninni.

Hver er staða Glen í landsliðinu? Glen hefur verið fastamaður að undanförnu og átt stöðu hægri bakvarðar.

Hvað um England? Liðið hefur verið mjög sannfærandi síðustu mánuði og það hefur leikið æ betur undir stjórn ítalska herforingjans Fabio Capello. Sumir sparkspekingar telja að margir í enska liðinu séu á hátindi ferils síns og þess vegna sé þessi keppni besta tækifæri enskra til að vinna HM frá því 1966.
 
Alþjóðlegir titlar Englendinga: Heimsmeistarar 1966.

Besti Englendingur allra tíma? Það er úr mörgum snjöllum leikmönnum að velja. Margir telja þó miðvörðinn frábæra Bobby Moore, sem lék með West Ham United og Fulham, þann besta. Hann var fyrirliði Englendinga þegar þeir urðu Heimsmeistarar. Hann var einn manna heiðraður með nafngift við nýja Wembley.

Vissir þú? Glen hefur leikið í öllum aldursflokkum með enska landsliðinu frá undir 15 ára liðinu.

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan