L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
13.06.2010 22:06
|
Heimir Eyvindarson
Carra vonast til að byrja gegn Alsír
Jamie Carragher vonast til að vera í byrjunarliði Englendinga þegar þeir mæta Alsíringum í öðrum leik sínum á HM.
Carragher kom inn á fyrir Ledley King í hálfleik í leik Englendinga gegn Bandaríkjamönnum í gær, en King varð fyrir smávægilegu hnjaski í leiknum. Hann sætir nú meðferð hjá læknum enska liðsins en þeir eru ekki vissir um að hann verði leikfær á föstudag. Ætla má að Carragher hefji leikinn ef King fær ekki grænt ljós hjá læknaliðinu.
Englendingar áttu engan stjörnuleik gegn Bandaríkjamönnum í gær. Þeir byrjuðu að vísu vel og Steven Gerrard kom þeim yfir strax á 6. mínútu, en það sem eftir lifði leiks var ekki að sjá að þarna væri á ferð lið sem gerði tilkall til heimsmeistaratitilsins.
Carragher átti, líkt og flestir liðsfélagar hans, frekar slappan dag í gær. Hann vonast samt sem áður til þess að hljóta náð fyrir augum Capello þegar Ítalinn velur byrjunarliðið gegn Alsír.
,,Ég vona að ég fái að spila. Ledley meiddist á nára snemma í leiknum og gerði vel í að þrauka fram að leikhléi. Ég veit ekki hvort hann verður klár fyrir leikinn á föstudaginn, en auðvitað vona ég að ég fái að spila. Það var auðvitað ein af ástæðunum fyrir því að ég ákvað að gefa kost á mér aftur, maður vill alltaf spila."
,,Ég er ekki vitlaus. Ég veit vel að ég kom hingað til Afríku sem varamaður, en það var ánægjulegt fyrir mig að fá að koma inn á gegn Bandaríkjamönnum. Ég vona að ég fái að spila fleiri leiki. En fyrst og fremst vona ég auðvitað að liðinu gangi vel."
,,Það er enginn heimsendir að hafa gert jafntefli í fyrsta leik, þótt við hefðum að sjálfsögðu átt að gera betur. Nú þjöppum við okkur bara saman og vinnum næstu tvo leiki. Þá erum við öruggir upp úr riðlinum. Það er fyrsta mál á dagskrá."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir