Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku
Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar heldur áfram. Þriðji í röðinni er Javier Mascherano.
Nafn: Javier Mascherano.
Fæðingardagur: 08.06.1984.
Fæðingarstaður: San Lorenzo í Argentínu.
Staða: Miðvallarleikmaður.
Félög á ferli: River Plate, Corinthians, West Ham United og Liverpool.
Fyrsti landsleikur: 16.07.2002 gegn Úrúgvæ.
Landsleikjafjöldi: 57.
Landsliðsmörk: 2.
Leikir með Liverpool: 138.
Mörk fyrir Liverpool: 2.
Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Javier var langt frá sínu besta framan af keppnistímabilinu og var talið að erfitt gengi argentínska landsliðsins væri að íþyngja honum. Þessi kenning fékk styrkari stoðir þegar Javier fór að spila vel eftir að Argentína komst á HM. Hann lék vel eftir áramótin og var þá sjálfum sér líkur.
Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er gríðarlega harður og duglegur miðjumaður. Tæklingar eru hans sérgrein og þegar hann er rétt stemmdur kemst varla nokkur maður framhjá honum á miðjunni.
Hver er staða Javier í landsliðinu? Diego Maradona sagði eitt sinn að argentínska landsliðið væri Javier Mascherano og tíu aðrir leikmenn. Diego gerði Javier strax að fyrirliðia þegar hann tók við starfi landsliðsþjálfara. Þarf eitthvað annað að segja?
Hvað um Argentínu? Lið Argentínu átti í erfiðleikum með að tryggja sér farseðil til Suður Afríku en það er ekki nokkur vafi á því að liðið á að geta náð langt ef bestu menn liðsins ná sér á strik. Sumir sparkspekingar telja Diego Maradona ekki rétta manninn til að stjórna liðinu.
Alþjóðlegir titlar Argentínumanna: Heimsmeistarar 1978 og 1986.
Besti Argentínumaður allra tíma? Diego Maradona er auðvitað besti knattspyrnumaður sem Argentína hefur alið og sumir telja hann besta leikmann í allri sögu knattspyrnunnar. Hann bjó yfir töfrum sem á köflum voru óskiljanlegir venjulegu fólki.
Vissir þú? Javier hefur tvívegis orðið Olympíumeistari í knattspyrnu.
Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

