| Sf. Gutt

Fulltrúar Liverpool í Suður Afríku

Kynningin á fulltrúum Liverpool í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar hefst hér. Fyrstur í röðinni er Daniel Agger.
 

Nafn: Daniel Agger.

Fæðingardagur: 12.12.1984.

Fæðingarstaður: Hvidovre í Danmörku.

Staða:
Miðvörður.

Félög á ferli: Rosenhøj, Brøndby og Liverpool.

Fyrsti landsleikur: 02.06.2005 gegn Finnlandi.

Landsleikjafjöldi: 30.

Landsliðsmörk: 3.

Leikir með Liverpool: 115.

Mörk fyrir Liverpool: 7.

Hvernig gekk á síðustu leiktíð? Það gekk á ýmsu. Daniel var meiddur framan af en eftir að hann náði sér heilum var hann fastamaður í hjarta varnar Liverpool. Hann hefur þó spilað betur en á síðustu leiktíð. 

Hver eru helstu einkenni okkar manns? Hann er sterkur varnarmaður og hefur síðustu árin verið talinn einn efnilegasti miðvörður í Evrópu. Hann hefur ekki alveg uppfyllt þær væntingar. Meiðsli síðustu árin hafa verið honum erfið. Daniel er þekktur fyrir rispur sínar fram völlinn úr vörninni.   

Hver er staða Daniel í landsliðinu? Hann hefur verið fastamaður í liðinu síðustu árin. Hann er trúlega einn sá fyrsti sem Morten Olsen skrifar niður þegar hann er að að velja landsliðhópinn sinn. 

Hvað um Danmörku? Lið Danmerkur er besta landslið á Norðurlöndum og það stóð sig mjög vel í undankeppninni. Það ætti að geta staðið sig vel í Suður Afríku.

Alþjóðlegir titlar Dana: Evrópumeistarar landsliða 1992.

Vissir þú? Daniel á veitingastaði bæði í Liverpool og heimalandi sínu.

Besti Dani allra tíma? Allan Simonsen. Það er þó ekki gott að segja til um það en þessi smávaxni sóknarmaður var alveg magnaður á sínum tíma. Hann var kjörinn Knattspyrnumaður ársins í Evrópu í tvígang.

Helsta heimild: http://www.lfchistory.net.

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan