| Ólafur Haukur Tómasson

Rafa gefur fé til Hillsborough samtaka

Það er núna rétt rúm vika síðan Rafael Benítez hætti sem knattspyrnustjóri Liverpool eftir sex ára dvöl hjá félaginu.

Rafa var vinsæll hjá mörgum stuðningsmönnum félagsins og fór hann oft fögrum orðum um hve þakklátur hann væri fyrir stuðninginn og hve vænt honum þótti um félagið og stuðningsmennina.

Hann var auðvitað viðstaddur minningarathöfnina sem var haldinn í fyrra en þá voru tuttugu ár síðan Hillsborough slysið varð þegar 96 stuðningsmenn Liverpool létust.

Skömmu áður en hann flaug til Ítalíu að semja við Inter Milan þá kom hann við hjá stuðningshóp fjölskyldna þeirra sem létust í slysinu og mætti með ávísun stílaða upp á 96,000 pund sem jafngildir meira en 18 milljónum króna. Margaret Aspinall, forsprakki hópsins, var virkilega þakklát framlagi Spánverjans.

"Þegar hann rétti fram ávísunina var hann mjög tilfinningasamur, einnig ég og nefndin, sérstaklega þegar við sáum upphæðina. Hann sagðist bara vilja hjálpa okkur með málstaðinn og vonaðist til að við myndum ná því fram sem við eigum réttilega skilið. Við þurfum að nýta peninga í mikið; árlegar minningarathafnir, leigu fyrir skrifstofur og útgjöld en Rafa sagði að svo lengi sem þetta hjálpaði hópnum þá væri það allt sem skipti máli.

Hugsunin var að hann vildi gera eitthvað sérstakt fyrir stuðningsmennina og hann veit að Hillsborough er hluti af því. Hann rétti fram ávísunina og óskaði okkur góðs gengis í leit okkar að sannleikanum.

Það var afar gott að vita af því að hann vildi hitta okkur áður en hann fór." sagði Aspinall.

Það er greinilegt að Rafa, sem landaði Evrópumeistara- og bikarmeistaratitli með Liverpool, sé með Liverpool í hjarta sínu en ásamt þessu þá sættist hann á að fá aðeins smá hluta af þeim sextán sem hann hefði átt rétt á fyrir að víkja úr starfi og vonandi fær nýr knattspyrnustjóri það sem eftir var í leikmannakaup.

Nú hefur Rafa eins og áður segir hafið nýjan kafla í sínum ferli hjá Evrópu- og Ítalíumeisturunum í Inter Milan og er honum óskað góðs gengis þar, nema auðvitað á móti Liverpool.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan