L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
27.05.2010 08:05
|
Ólafur Haukur Tómasson
Stevie hælir Johnson
Hægri bakvörðurinn Glen Johnson lék allan leikinn með enska landsliðinu í undirbúningsleik liðsins gegn Mexíkó fyrr í vikunni. Peter Crouch skoraði eitt mark og lagði upp annað, og Steven Gerrard átti stóran þátt í þeim tveim mörkum en senunni stal Glen Johnson sem skoraði með glæsilegu vinstri fótarskoti eftir frábært hlaup upp hægri kantinn. Glen var svo valinn maður leiksins.
Steven Gerrard hrósar liðsfélaga sínum fyrir frammistöðu sína í leiknum. Hann býst við að bakvörðurinn sé að ná sínu besta formi og muni verða mikilvægur í liði Liverpool á næstu leiktíð en hans fyrsta leiktíð á Anfield einkenndist af meiðslum í hné og aftan í læri, svo hann var stóran hluta tímabilsins utan hóps.
"Mér fannst Glen eiga mjög góðan leik og hann skoraði frábært mark. Hann hefur gert þetta nokkru sinnum fyrir okkur og hann getur ollið miklum skaða með vinstri fæti sínum. Hann er mjög hættulegur þegar hann hleypur upp kantinn eins og hann gerði gegn Mexíkó og leitar inn að markinu. Þegar hann er í þessum ham gefur hann Englandi mikla möguleika.
Hann er með gífurleika hæfileika. Glen er einn besti sóknarsinnaði bakvörðurinn í heiminum og mér finnst hann hafa gert vel fyrir okkur en það á mun meira eftir að koma frá honum. Meiðsli hafa hrjáð hann á leiktíðinni en ég er viss um að á næstu leiktíð mun hann sína sitt besta reglulega, eins og hann sýndi þegar hann kom hingað fyrst.
Meiðsli er versti hlutinn í heimi fótboltaleikmannsins og Glen hefur verið óheppinn því hann varð fyrir nokkrum á mismunandi tímum. Það sem fólk skilur ekki er að þegar maður hefur verið frá í tvær eða þrjár vikur þá tekur það mann tvær til þrjár vikur að koma sér aftur í leikform.
Þegar þú hugsar út í það var hann einnig að reyna að aðlagast nýju félagi og þá sér maður að það var ekki auðvelt en ef hann nær meiðslausri hrynu þá er hann klárlega mikilvægur fyrir okkur, án nokkurs vafa. Liverpool verður mun betra lið með Glen Johnson í fullu formi og fullan sjálfstraust skjótast upp hægri kantinn og ég er viss um að hann sé klár í átökin." sagði fyrirliðinn.
Glen Johnson kom til Liverpool frá Portsmouth í samning sem talinn er nema hátt í sautján milljónir punda. Þrátt fyrir meiðslasamt tímabil þá skoraði hann engu að síður hann þrjú deildarmörk fyrir Liverpool, öll voru þau stórglæsileg en þetta er það mesta sem hægri bakvörður hefur skorað fyrir Liverpool í háa herrans tíð.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir