L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
20.05.2010 02:05
|
Heimir Eyvindarson
Riera vill burt
Hafi einhver óvissa ríkt um áhuga Albert Riera á að vera áfram í herbúðum Liverpool, hefur hann nú tekið af allan vafa.
Það eru ekki nýjar fréttir að Spánverjinn sé ósáttur í herbúðum Liverpool. Eins og menn muna gagnrýndi hann Rafael Benítez harðlega í viðtali við spænska útvarpsstöð fyrir rúmum tveimur mánuðum og hefur ekki spilað fyrir liðið síðan.
Riera tekur af allan vafa um það að hann vilji yfirgefa liðið í enskum fjölmiðlum í dag.
,,Ég vil komast til annars liðs. Ég er ekki sáttur við það hvernig félagið og framkvæmdastjórinn hafa komið fram við mig."
,,Lið á Englandi starfa á annan hátt en lið á Spáni. Hér ræður framkvæmdastjórinn öllu og stjórnin hjá Liverpool hefur ekkert gert til að leysa málin."
Þarna vísar Riera augljóslega til þess kulda sem hefur einkennt samskipti Benítez og Riera síðan sá síðarnefndi úttalaði sig um aðferðir stjórans í spænsku útvarpi.
,,Ég nenni ekki að standa í deilum við neinn. Ef félagið stendur ekki með þér þegar svona staða kemur upp þá eru það skýr skilaboð um að krafta þinna sé ekki óskað. Ég hef engan áhuga á að vera þar sem ekki er sóst eftir kröftum mínum."
,,Ég hef ekkert spilað með liðinu síðast liðna tvo mánuði og nú vil ég einfaldlega komast til liðs þar sem ég fæ að spila og á möguleika á að vinna titla. Mér er nokkuð sama í hvaða landi það verður."
Ekki er gott að segja hversu mikil eftirspurn er eftir kröftum þessa spænska kantmanns. Háar launakröfur og ítrekaður vilji hans til að yfirgefa félagið munu allavega ekki hækka verðmiðann á honum.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2010/2011
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld