| Sf. Gutt
Rafael Benítez verður ekki framkvæmdastjóri Juventus en félagið tilkynnti um nýjan stjóra í gær. Fjölmiðlamenn geta því ekki lengur bendlað Rafa við Juve og verða að snúa sér að öðrum kenningum.
Luigi Del Neri verður næsti framkvæmdastjóri Juventus en ekki Rafael Benítez eins og ýmsir fjölmiðlar töldu að yrði. Ekki er hægt að fullyrða hvort og þá hversu mikið var til í þeim sögusögnum.
Núna gera ýmsir fjölmiðar því skóna að bæði Mílanó félögin hafi hug á að næla í Rafael Benítez. AC Milan er án stjóra eftir að Leonardo hætti nú á dögunum. Inter verður svo án framkvæmdastjóra, ef marka má sögusagnir, eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni en þá á Jose Mourinho að hætta með liðið og í framhaldi taka við stjórninni hjá Real Madrid. Einfalt mál ekki satt? Sem fyrr verður að sjá hvað úr verður!
TIL BAKA
Ekki fer Rafael til Juventus!
Rafael Benítez verður ekki framkvæmdastjóri Juventus en félagið tilkynnti um nýjan stjóra í gær. Fjölmiðlamenn geta því ekki lengur bendlað Rafa við Juve og verða að snúa sér að öðrum kenningum. Luigi Del Neri verður næsti framkvæmdastjóri Juventus en ekki Rafael Benítez eins og ýmsir fjölmiðlar töldu að yrði. Ekki er hægt að fullyrða hvort og þá hversu mikið var til í þeim sögusögnum.
Núna gera ýmsir fjölmiðar því skóna að bæði Mílanó félögin hafi hug á að næla í Rafael Benítez. AC Milan er án stjóra eftir að Leonardo hætti nú á dögunum. Inter verður svo án framkvæmdastjóra, ef marka má sögusagnir, eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni en þá á Jose Mourinho að hætta með liðið og í framhaldi taka við stjórninni hjá Real Madrid. Einfalt mál ekki satt? Sem fyrr verður að sjá hvað úr verður!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

