| Sf. Gutt
Diego Maradona hefur nú valið landsliðshóp Argentínumanna fyrir Heimsmeistarakeppnina í Suður Afríku. Tveir fulltrúar Liverpool eru í hópnum. Þetta eru þeir Javier Mascherano og Maxi Rodriguez.
Javier var öruggur með sæti sitt í landsliðshópnum enda verið fyrirliði Argentínu á valdatíma Diego. Miðað við umsagnir Diego er líklegt að hann hafi skrifað nafn Javier fyrst þegar hann setti hópinn sinn á blað.
Á hinn bóginn hefur Maxi ekki verið fastamaður í landsliðinu að undanförnu og því getur hann vel við unað að hafa komist í HM hópinn. Hann lék vel með Liverpool eftir að hann kom til liðsins og góð framganga hans á Englandi skilaði sér greinilega. Maxi getur því verið ánægður með að hafa gengið til liðs við Liverpool nú í byrjun ársins.

Argentínumenn eru með mjög sterkt lið og verða að teljast ein sú þjóð sem hvað sigurstranlegust er í Suður Afríku. Landsliðshópur Diego Maradona þykir þó af sumum ekki sá sterkasti sem völ var á og sparkspekingar í Argentínu telja nokkra sterka menn, sem ekki voru valdir, hafa átt erindi í hópinn. Ekkert kemur þó á óvart þegar goðsögnin Diego er annars vegar enda hefur hann ætíð farið sínar eigin leiðir.
Hér er landsliðshópur Argentínumanna í heild sinni.
Markmenn: Sergio Romero (AZ Alkmaar), Mariano Andujar (Catania), Diego Pozo (Colon);
Varnarmenn: Nicolas Burdisso (Roma), Martin Demichelis (Bayern Munchen), Walter Samuel (Inter Milan), Gabriel Heinze (Marseille), Nicolas Otamendi (Velez Sarsfield), Clemente Rodriguez (Estudiantes), Ariel Garce (Colon);
Miðjumenn: Javier Mascherano (Liverpool), Juan Sebastian Veron (Estudiantes), Maxi Rodriguez (Liverpool), Mario Bolatti (Fiorentina), Angel Di Maria (Benfica), Jonas Gutierrez (Newcastle), Javier Pastore (Palermo);
Sóknarmenn: Sergio Aguero (Atletico Madrid), Diego Milito (Inter Milan), Martin Palermo (Boca Juniors), Carlos Tevez (Manchester City), Gonzalo Higuain (Real Madrid), Lionel Messi (Barcelona).
TIL BAKA
Javier og Maxi fara á HM
Diego Maradona hefur nú valið landsliðshóp Argentínumanna fyrir Heimsmeistarakeppnina í Suður Afríku. Tveir fulltrúar Liverpool eru í hópnum. Þetta eru þeir Javier Mascherano og Maxi Rodriguez. Javier var öruggur með sæti sitt í landsliðshópnum enda verið fyrirliði Argentínu á valdatíma Diego. Miðað við umsagnir Diego er líklegt að hann hafi skrifað nafn Javier fyrst þegar hann setti hópinn sinn á blað.
Á hinn bóginn hefur Maxi ekki verið fastamaður í landsliðinu að undanförnu og því getur hann vel við unað að hafa komist í HM hópinn. Hann lék vel með Liverpool eftir að hann kom til liðsins og góð framganga hans á Englandi skilaði sér greinilega. Maxi getur því verið ánægður með að hafa gengið til liðs við Liverpool nú í byrjun ársins.

Argentínumenn eru með mjög sterkt lið og verða að teljast ein sú þjóð sem hvað sigurstranlegust er í Suður Afríku. Landsliðshópur Diego Maradona þykir þó af sumum ekki sá sterkasti sem völ var á og sparkspekingar í Argentínu telja nokkra sterka menn, sem ekki voru valdir, hafa átt erindi í hópinn. Ekkert kemur þó á óvart þegar goðsögnin Diego er annars vegar enda hefur hann ætíð farið sínar eigin leiðir.
Hér er landsliðshópur Argentínumanna í heild sinni.
Markmenn: Sergio Romero (AZ Alkmaar), Mariano Andujar (Catania), Diego Pozo (Colon);
Varnarmenn: Nicolas Burdisso (Roma), Martin Demichelis (Bayern Munchen), Walter Samuel (Inter Milan), Gabriel Heinze (Marseille), Nicolas Otamendi (Velez Sarsfield), Clemente Rodriguez (Estudiantes), Ariel Garce (Colon);
Miðjumenn: Javier Mascherano (Liverpool), Juan Sebastian Veron (Estudiantes), Maxi Rodriguez (Liverpool), Mario Bolatti (Fiorentina), Angel Di Maria (Benfica), Jonas Gutierrez (Newcastle), Javier Pastore (Palermo);
Sóknarmenn: Sergio Aguero (Atletico Madrid), Diego Milito (Inter Milan), Martin Palermo (Boca Juniors), Carlos Tevez (Manchester City), Gonzalo Higuain (Real Madrid), Lionel Messi (Barcelona).
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

