L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
20.05.2010 20:05
|
Sf. Gutt
Mikel San José seldur
Spánverjinn ungi
Mikel San José Domínguez
hefur verið seldur frá Liverpool. Hann var í láni hjá Athletic Bilbao á þessu keppnistímabili og nú hefur hann verið seldur til félagsins. Liverpool keypti hann frá Bilbao á 270.000 sterlingspund sumarið 2007.
Fregnir herma að Liverpool hafi fengið 2.6 milljónir fyrir Mikel og verða þessi viðskipti að teljast vel heppnuð miðað við að í hlut átti leikmaður sem aldrei lék með aðalliðinu. Mikel komst einu sinni á varamannabekk aðalliðsins og er meðfylgjandi mynd tekin þá.
Hér
má sjá um hvaða leik var að ræða.
Mikel, sem hefur spilað með undir 21. árs landsliði Spánar þykir með efnilegri varnarmönnum Spánverja. Hann var fastamaður í liði Bilbao á þessari leiktíð og þótti standa sig með miklum sóma í vörn liðsins.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir