| Ólafur Haukur Tómasson
Rafael Benítez sá sér tíma til að hæla tveimur leikmönnum Liverpool fyrir frammistöður þeirra og hugarfars á leiktíðinni. Leikmennirnir sem umræðir eru Pepe Reina og Ryan Babel, sem að eru á fullu þessa dagana með landsliðum sínum að undirbúa sig fyrir Heimsmeistaramótið sem hefst eftir nokkra daga.
Ryan Babel virtist vera á mörkum þess að yfirgefa Liverpool í janúar þegar hann greindi frá því á Twitter-síðu sinni að hann yrði ekki í leikmannahópnum. Það fór ekki vel í Rafael Benítez og þjálfarateymi hans og leit á tíma út fyrir að hann gengi til liðs við Birmingham í janúar en þeir bláklæddu buðu níu milljónir punda í hann, það tilboð þótti hins vegar ekki nægilega gott og Liverpool höfnuðu því. Babel vildi ná að vinna sér fá að spila leiki til að vinna sér inn sæti í hollenska landsliðinu fyrir Heimsmeistaramótið og vildi fara aftur til Ajax á láni en Benítez var ekki hlynntur þeirri hugmynd.
Þeir áttu samtal sín á milli, Benítez og Babel, þar sem þeir greindu frá hugmyndum sínum og reyndu að hreinsa loftið. Það skilaði árangri og allt annar Babel leit dagsins ljós en hann tók þátt í tuttugu af síðustu 23 leikjum liðsins á leiktíðinni. Benítez hrósaði Babel fyrir breytt hugarfar.
"Við funduðum í janúar. Ég kom fram með mínar hugmyndir og hann kom með sínar hugmyndir um framtíðina. Ég kom því á hrient að ég vildi halda honum vegna þess að hann er leikmaður sem getur breytt gangi leikja. Hann sagði mér að hann vildi spila fleiri leiki og leggja hart að sér. Ég sagði honum þá að það væri ekki vandamál því við höfðum sömu
hugmyndir. Það var gott fyrir hann að fá tækifæri og gott fyrir liðið.
Þegar við keyptum hann þá hittum við fjölskyldu hans og maður sá að þau eru gott fólk sem vildu að hann myndi gera vel. Ryan hefur átt í erfiðleikum en hann er að þroskast og mér fannst að í lok tímabilsins var hann orðinn mun betri." sagði Benítez.
Leikmaður ársins hjá Liverpool, Pepe Reina, var í stóru hlutverki hjá Liverpool á leiktíðinni og mátti liðið þakka fyrir það að hafa hann á milli stanganna í vetur en hann bjargaði liðinu oft frábærlega þegar mikið var undir. Hann hlaut sinn fjórða gullhanska á fimm árum en sú viðurkenning er veitt þeim markverði sem heldur oftast hreinu yfir leiktíðina í Úrvalsdeildinni. Hann deildi hanskanum að þessu sinni með Peter Cech, markverði Chelsea.
"Reina er frábær markvörður. Þegar við þurftum á honum að halda þá var hann til staðar. Viðurkenningin er verðskulduð. Hann hefur verið frábær, ekki bara á þessari leiktíð heldur líka síðustu þrjú eða fjögur ár. Pepe er markvörður fyrir stórlið vegna þess að hann verður ekki virkur þáttakandi í einhverjum leikjum en ver svo allt í einu frábærlega vegna þess að hann er alltaf einbeittur og tilbúinn. Ef það eru eitt til tvö færi í leiknum þá er hann til staðar. Hann er nútíma markvörður sem getur líka spilað fyrir utan teiginn. Hann er meira 'sweeper' heldur en markvörður, en ef þú þarft að hann sé markvörður þá er hann einn af þeim bestu." sagði Benítez.
TIL BAKA
Rafa hælir Babel og Reina
Rafael Benítez sá sér tíma til að hæla tveimur leikmönnum Liverpool fyrir frammistöður þeirra og hugarfars á leiktíðinni. Leikmennirnir sem umræðir eru Pepe Reina og Ryan Babel, sem að eru á fullu þessa dagana með landsliðum sínum að undirbúa sig fyrir Heimsmeistaramótið sem hefst eftir nokkra daga.Ryan Babel virtist vera á mörkum þess að yfirgefa Liverpool í janúar þegar hann greindi frá því á Twitter-síðu sinni að hann yrði ekki í leikmannahópnum. Það fór ekki vel í Rafael Benítez og þjálfarateymi hans og leit á tíma út fyrir að hann gengi til liðs við Birmingham í janúar en þeir bláklæddu buðu níu milljónir punda í hann, það tilboð þótti hins vegar ekki nægilega gott og Liverpool höfnuðu því. Babel vildi ná að vinna sér fá að spila leiki til að vinna sér inn sæti í hollenska landsliðinu fyrir Heimsmeistaramótið og vildi fara aftur til Ajax á láni en Benítez var ekki hlynntur þeirri hugmynd.
Þeir áttu samtal sín á milli, Benítez og Babel, þar sem þeir greindu frá hugmyndum sínum og reyndu að hreinsa loftið. Það skilaði árangri og allt annar Babel leit dagsins ljós en hann tók þátt í tuttugu af síðustu 23 leikjum liðsins á leiktíðinni. Benítez hrósaði Babel fyrir breytt hugarfar.
"Við funduðum í janúar. Ég kom fram með mínar hugmyndir og hann kom með sínar hugmyndir um framtíðina. Ég kom því á hrient að ég vildi halda honum vegna þess að hann er leikmaður sem getur breytt gangi leikja. Hann sagði mér að hann vildi spila fleiri leiki og leggja hart að sér. Ég sagði honum þá að það væri ekki vandamál því við höfðum sömu
hugmyndir. Það var gott fyrir hann að fá tækifæri og gott fyrir liðið.Þegar við keyptum hann þá hittum við fjölskyldu hans og maður sá að þau eru gott fólk sem vildu að hann myndi gera vel. Ryan hefur átt í erfiðleikum en hann er að þroskast og mér fannst að í lok tímabilsins var hann orðinn mun betri." sagði Benítez.
Leikmaður ársins hjá Liverpool, Pepe Reina, var í stóru hlutverki hjá Liverpool á leiktíðinni og mátti liðið þakka fyrir það að hafa hann á milli stanganna í vetur en hann bjargaði liðinu oft frábærlega þegar mikið var undir. Hann hlaut sinn fjórða gullhanska á fimm árum en sú viðurkenning er veitt þeim markverði sem heldur oftast hreinu yfir leiktíðina í Úrvalsdeildinni. Hann deildi hanskanum að þessu sinni með Peter Cech, markverði Chelsea.
"Reina er frábær markvörður. Þegar við þurftum á honum að halda þá var hann til staðar. Viðurkenningin er verðskulduð. Hann hefur verið frábær, ekki bara á þessari leiktíð heldur líka síðustu þrjú eða fjögur ár. Pepe er markvörður fyrir stórlið vegna þess að hann verður ekki virkur þáttakandi í einhverjum leikjum en ver svo allt í einu frábærlega vegna þess að hann er alltaf einbeittur og tilbúinn. Ef það eru eitt til tvö færi í leiknum þá er hann til staðar. Hann er nútíma markvörður sem getur líka spilað fyrir utan teiginn. Hann er meira 'sweeper' heldur en markvörður, en ef þú þarft að hann sé markvörður þá er hann einn af þeim bestu." sagði Benítez.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

